SKÝRSLAN: Aldrei spurning hjá Aftureldingu
Hvað réði úrslitum?
Gæði Aftureldingar voru einfaldlega meiri í þessum leik og það skilaði þremur stig í hús. Mjög sanngjarn sigur.
Bestu leikmenn
1. Jason Daði Svanþórsson
Eftir dapra frammistöðu í síðasta leik steig þessi efnilegi leikmaður heldur betur upp og átti frábæran leik í kvöld. Skoraði tvö mörk og var virkilega ógnandi allan leikinn. Meira svona!
2. Alexander Aron Davorsson
Flottur leikur hjá flugunni í kvöld. Barðist eins og ljón í 60 mínútur og skoraði örugglega úr vítaspyrnunni sem hann fiskaði sjálfur. Hann átti líka þriðja mark Aftureldingar alveg skuldlaust eftir frábæran sprett upp völlinn.
Atvikið
Fjórða mark Aftureldingar drap leikinn alveg og Magni reyndi varla eftir það mark.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding lyftir sér upp úr fallsæti en Magnamenn þurfa að girða sig í brók og fara að sækja til sigurs.
Vondur dagur
Allt Magna liðið átti vondan leik og því engin einn sem fær heiðurinn. Þeir geta reyndar þakkað Aroni Elí fyrir að ekki fór verr þar sem hann átti nokkrar góðar vörslur í leiknum. Þeir þurfa heldur betur að gíra sig upp í næsta leik og gera mun betur.
Dómarinn - 8
Ég tók varla eftir dómaranum og þannig vill maður hafa það. Engin stór mistök.



