SKÝRSLAN: FH lyfta sér úr botnsætinu eftir fjörugan leik
Hvað réði úrslitum?
FH mikið sterkari í fyrri hálfleik, fengu fullt af færum og áttu mjög góðan kafla eftir um hálftíma leik þar sem þær skoruðu tvö mörk með stuttu millibili. KR komu þó betur stilltar í seinni hálfleikinn og minnka fljótt muninn. En FH voru ólseigar í leiknum og ná að pota tveimur mörkum í seinni þegar KR færðu sig framar á völlinn og áttu sigurinn bara skilið.
Bestu leikmenn
1. Phoenetia Maiya Lureen Browne
Phoenetia. Sú var á öðru leveli í dag. KR réðu ekkert við hana og komst hún stöðugt í góð færi. Skoraði fyrsta markið og var með stoðsendingu í marki tvö. Hefði hæglega getið skorað fleiri er hún lék sér að vörn gestanna. Alvöru power-leikmaður.
2. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Margar sem koma hér til greina en ég ætla að gefa Þórdísi þetta í dag. Einn af fáum ljósum punktum í leik KR-inga og var eiginlega eini leikmaðurinn sem ógnaði fram á við. Mér finnst að hún eigi að færa sig úr bakverðinum og framar á völlinn því með þennan hraða og þessi gæði þá gæti hún verið það sem KR þurfa í sóknarleiknum.
Atvikið
4 mínútna kafli í fyrri hálfleik. FH setja þá bara í einhvern gír sem ég hefði ekki getað ímyndað mér að þær ættu til, skora 2 mörk, fá tvær hornspyrnur og eiga eitt dauðafæri. KR gleymdu bara að þær væru inn á vellinum á þeim tíma.
Hvað þýða úrslitin?
Þessi leikur var gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið og sannkallaður 6 stiga leikur. Með þessum sigri kemst FH yfir KR og upp í 9. sætið með 9 stig en KR er komið í botnsæti deildarinnar (en eiga þó 3 leiki til góða).
Vondur dagur
Engin ein sem átti hræðilegan leik. Langar að henda þessu bara á KR liðið fyrir að byrja ekki að spila fyrr en í seinni hálfleik. Kannski var eitthvað vanmat eftir sigurinn í Mjólkurbikarnum en það þýðir bara ekki í svona mikilvægum leik. En ég hef fulla trú á því að þær geri þau mistök ekki aftur.
Dómarinn - 6
Furðuleg dómgæsla og skrítin útfærsla oft á tíðum.



