SKÝRSLAN: Þrautsegja og áræðni í sterkum sigri Þróttar
Hvað réði úrslitum?
Varnarleikurinn vann þennan leik. Magnaður varnarleikur hjá heimamönnum í seinni hálfleik skóp þennan erfiða sigur.
Bestu leikmenn
1. Atli Geir Gunnarsson
Var frábær í bakverðinum í dag. Strákur fæddur árið 2000 sem stjórnaði vörninni algjörlega í þessum seinni hálfleik
2. Hafþór Pétursson
Spilaði mjög vel allan leikinn. Kom sér í tvígang fyrir hættuleg skotfæri og bjargaði sínum mönnum
Atvikið
Fyrsta markið. Frábærlega gert hjá Dion Acoff. Leiðinlegt fyrir deildina að missa svona góðan mann í meiðsli.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri halda áfram í 7 sætinu en missa af tækifærinu á að komast uppfyrir Þór og Grindavík tímabundið. Þróttarar lyfta sér uppfyrir Leikni F á markatölu.
Vondur dagur
Gæti sagt Túfa. Gæti sagt dómarinn en ég hugsa að ég gefi Friðrik þetta. Fyrirliðinn fær dæmt á sig vítið sem Rojo skoraði úr og fær svo rautt. Tvö dýrmæt atriði þrátt fyrir að hann hafi sennilega ekki átt rauða spjaldið skilið.
Dómarinn - 4
Mér fannst hann dæma þetta svo vel til að byrja með.. svo fór hann bara í algjöra vitleysu. Þetta rauða spjald kórónar hans dag. Glórulaus dómur.


