SKÝRSLAN: Víkingur Ó kláraði leikinn í fyrri hálfleik en Magnamenn gáfust ekki upp
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur Víkinga réði úrslitum, þeir voru skarpir, ferskir og ætluðu sér að skora snemma sem og þeir gerðu. Hvort það hafi sjokkerað Magna menn hvað þeir voru direct og ferskir veit ég nú ekki, en þeir gátu ekkert í fyrri hálfleik, héldu varla bolta í meira en 2 til 3 sendingar svo búið. Að fara 3-0 undir inn í hálfleik var bara of mikið.
Bestu leikmenn
1. Michael Newberry
Þessi ungi leikmaður er án efa einn besti varnarmaður Lengju deildarinnar. Hann sannaði það enn og aftur, þó svo hann hafi spilað leikinn í hægri bakverði fyrstu 60 mín. Michael er 21 árs gamall, en hann spilar með leikskilning manns sem er 30 ára +, alveg ótrúlegt. Hann barðist allar 93 mín og átti algjörlega skilið mann leiksins.
2. Gonzalo Zamorano Leon
Gonzi eins og hann er kallaður hér í Ólafsvík er hættulegasti framherji Lengju deildarinnar, hann skoraði og átti stoðsendingu í þessum leik, hann átti fleiri færi í þessum leik og var að skapa usla hvert skipti sem hann komst á sprett. Þegar hann er í stuði þá vorkenni ég varnarmönnum andstæðingana.
Atvikið
Þegar Magni skora seinna mark sitt á 89. mín!
Þeir fundu fyrir því að þeir ættu séns, en því miður þá var það bara aðeins of seint og ekki var bætt miklu við, en þeir börðust hetjulega í seinni hálfleik og gáfust ekki upp.
Þeir fundu fyrir því að þeir ættu séns, en því miður þá var það bara aðeins of seint og ekki var bætt miklu við, en þeir börðust hetjulega í seinni hálfleik og gáfust ekki upp.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur Ó. koma sér í betri stöðu í botnbaráttunni og hoppa upp í 8.sæti með 15 stig, en Magna menn sitja enn í því 12. og það á botninum með 8 stig.
Vondur dagur
Það var enginn einn, en það fer á allt lið Magna í fyrri hálfleik.
Dómarinn - 7
Ekkert þannig hægt að setja útá leik dómarans, hann átti bara fínan leik, missti leikinn ekkert úr greipum sér.


