Fotbolti.net
Mist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Eimskipsvöllurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 136' Alexandra Jóhannsdóttir 0 - 256' Agla María Albertsdóttir 0 - 363' Alexandra Jóhannsdóttir 0 - 479' Agla María Albertsdóttir
Dómari: Þórður Már Gylfason

SKÝRSLAN: Beittir Blikar beint á beinu brautina

Hvað réði úrslitum?

Heimakonur mættu óhræddar til leiks og pressuðu gestina af krafti. Fyrri hálfleikur var nokkuð opinn og skemmtilegur og bæði lið sköpuðu sér fín færi áður en að Alexandra Jóhannsdóttir braut ísinn með laglegu skallamarki. Blikar náðu svo mun betri tökum á leiknum í síðari hálfleik og þar héldu Þróttarar ekki í við þær. Blikar skerptu á sóknarleik sínum og sýndu í hversu góðu líkamlegu formi þær eru í með því að spila á svakalegu tempói fram í uppbótartíma. Liðið bætti við þremur mörkum og það er gaman að því að tveir leikmenn skoruðu tvö mörk og tveir aðrir leikmenn lögðu upp sitthvor tvö mörkin. Þokkalegasta breidd í sóknarlínu Kópavogsliðsins.

Bestu leikmenn

1. Sveindís Jane Jónsdóttir

Tvær stoðsendingar og stöðug ógn frá Sveindísi. Spilaði sem fremsti maður í dag. Ógnaði þar en líka þegar hún dró sig út á vængina til að fá meira pláss til að hlaupa í. Frábær leikmaður.

2. Alexandra Jóhannsdóttir

Mögnuð frammistaða hjá miðjumanninum öfluga. Skoraði markið mikilvæga sem kom Blikum á bragðið og bætti svo við öðru í seinni hálfleik. Átti mögulega að fá víti og var alltaf mætt ógnandi inná teig þegar Blikar sóttu.

Svo verður að nefna hlut þeirra Öglu Maríu sem skoraði tvö mörk og Karólínu sem lagði upp tvö. Sóknarlína Blika í sviðsljósinu í kvöld.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins er oft það mikilvægasta og það var svoleiðis í dag. Alexandra Jóhannsdóttir var búin að vera ansi ógnandi áður en henni tókst að brjóta ísinn með góðu skallamarki eftir rúmlega hálftímaleik.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik svarar tapinu í síðasta deildarleik og fer í 30 stig. Eru stigi á eftir Val sem situr á toppnum en Blikar eiga leik til góða. Þróttarar eru áfram í 8. sæti með 10 stig og halda áfram að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

Vondur dagur

Það er erfitt að taka einstaka leikmenn út hérna því allar voru að reyna og leggja sig fram. Það er þó klassísk lausn að henda þessum vafasama titli á sóknarmanninn sem nær ekki að nýta færin sín. Stephanie Ribeiro var hetja Þróttar í síðustu umferð en náði ekki að klára færin sín í dag og tekur þetta á sig.

Dómarinn - 6

Blikar áttu líklega að fá víti í fyrri hálfleik og svo fannst mér nokkrar skrítnar ákvarðanir úti á velli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.