Fotbolti.net
Arnar Helgi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Pepsi-Max deild kvenna
JÁVERK-völlurinn
Skítaveður - rok og rigning. Oj barasta!
Selfoss
Selfoss
2 - 3
Stjarnan
Stjarnan
0 - 11' Betsy Doon Hassett0 - 210' Aníta Ýr ÞorvaldsdóttirBarbára Sól Gísladóttir 36'1 - 21 - 340' Shameeka Nikoda FishleyHelena Hekla Hlynsdóttir 92'2 - 3
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Vonskuveðrið hentaði Stjörnunni betur sem hirti stigin þrjú

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan nýtti sér sofandahátt Selfoss í upphafi leiks og setti tvö mörk strax á fyrstu mínútunum. Liðin skiptust á að halda boltanum og fá færi. Selfoss var mikið meira með boltann í síðari hálfleik en Stjarnan stóð vörnina virkilega vel. Selfyssingar reyndu og reyndu og komust lítið áfram. Það lifnaði von í blálokin þegar Helena Hekla minnkaði muninn en það var of seint.

Bestu leikmenn

1. Shameeka Nikoda Fishley

Skorar mark og leggur upp eitt og hálft mark má segja. Á skotið sem að Kaylan ver út þegar Betsy setti boltann í autt markið. Átti flottan dag á hægri kantinum og hjálpaði liðinu mikið í síðari hálfleik þegar Stjörnustúlkur þurftu að liggja til baka.

2. Betsy Doon Hassett

Mark og stoðsending frá Betsy í dag. Var góð á miðsvæðinu og mikil barátta í henni. Ætlaði að fara með þrjú stig frá Selfossi og henni tókst ætlunarverkið.

Atvikið

Markið sem Betsy Doon Hassett skorar eftir rúmar tuttugu sekúndur. Markið sem færir Stjörnunni hellings sjálfstraust en slær Selfoss algjörlega út af laginu.

Hvað þýða úrslitin?

Eftir þrjá sigurleiki í röð er Selfossliðið sigrað. Stjarnan vinnur sinn annan leik í röð en næstu tveir leikir liðsins eru gegn Breiðablik og Val.

Vondur dagur

Anna María Friðgeirsdóttir og Eva Lind Elíasdóttir áttu báðar nokkuð slæman dag í liði Selfoss. Fyrstu tvö mörk leiksins sem komu á fyrstu tíu mínútunum fóru bæði í gegnum Evu Lind. Eftir mörkin setti Alfreð hana á hægri kant og lét Barbáru niður í vinstri bakvörð. Anna María, sem tók föstu leikatriði Selfoss í leiknum, átti afleiddan spyrnudag. Skaut boltanum trekk í trekk út af vellinum. Tveir leikmenn sem eiga að gera mikið betur og það vita þær.

Dómarinn - 8,5

Mjög þægilegur leikur að dæma. Ekki mikið af vafaatriðum en Aðalbjörn og hans aðstoðarfólk komst vel frá þessu verkefni í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.