Leik lokið!
Leknum er lokið með 4 - 2 sigri Fylkis. Það gekk mikið á í þessum leik og við komum með viðtöl og skýrslu síðar í dag.
91. mín
Karen María með laust skot að marki Fylkis sem Cecilía átti auðvelt með.
88. mín
Fylkir kemst ekki yfir miðju síðasta kaflann úr leiknum þrátt fyrir að gestirnir séu manni færri. Þór/KA pressar og pressar og leitar að marki.
84. mín
Þór/KA sækir stíft að marki Fylkis og hafa fengið tvær hornspyrnur í röð. Sjáum hvort það skili marki ef þær halda áfram.
80. mín
InnSnædís Ósk Aðalsteinsdóttir
ÚtBerglind Baldursdóttir
80. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
80. mín
InnSigrún Salka Hermannsdóttir
ÚtStefanía Ragnarsdóttir
80. mín
InnMargrét Björg Ástvaldsdóttir
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
77. mín
MAAAARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir
Hrikaleg mistök hjá Lauren Allen markverði Þórs/KAn sem var komin út í teiginn, sendi boltann beint í fætur Bryndísar Örnu sem þakkaði fyrir sig og setti boltann frá vítateig í tómt markið.73. mín
Guðrún Karítas með skot í stöng eftir undirbúning Söru Daggar.
69. mín
MAAAARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir (stoðsending: Berglind Rós Ágústsdóttir )
Aftur er það Berglind sem er að leggja upp mark fyrir Fylki. Aftur frá hægri inn í teiginn á Bryndísi sem stýrði honum inn.67. mín
MAAAARK!
Hulda Björg Hannesdóttir
Hulda Björg með aukaspyrnu frá miðlínu, Cecilía fer inn í pakkann og reynir að ná boltanum en tekst ekki og boltinn lekur í markið. Cecílía mjög ósátt og taldi á sér brotið en dómarateymið á öðru máli.66. mín
InnGabriela Guillen Alvarez
ÚtMaría Catharina Ólafsd. Gros
65. mín
InnSara Dögg Ásþórsdóttir
ÚtVesna Elísa Smiljkovic
62. mín
MAAAARK!
Þórdís Elva Ágústsdóttir (stoðsending: Berglind Rós Ágústsdóttir )
Berglind með mjög góða fyrirgjöf þvert á markið þar sem Þórdís kom af harðfylgi og kom boltanum í markið. Fylkir komið í 2 - 1.60. mín
Eva rut með skot hátt yfir mark Þórs/KA. Ætlaði eflaust að leika markið sitt eftir en gekk ekki sem skildi.
58. mín
Heiða Ragney með skot yfir mark Fylkis.
55. mín
InnÞórdís Elva Ágústsdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
53. mín
Berglind Rós með skot yfir marki Þórs/KA. Það stefnir í einstefnu hér í seinni hálfleiknum meðan Fylkir er manni fleiri.
52. mín
Dauðafæri! Katla María í færi í tegnum sem er varið og boltinn barst á Huldu sem skaut en hitti ekki á markið.
50. mín
Rautt spjald
Margrét Árnadóttir
Það fer ekki vel af stað hjá Þór/KA í seinni hálfleik, missa mann af velli áður en hann hefst og nú fær Margrét að líta rauða spjaldið fyrir að setja olnbogann í Cecilíu Rán þegar hún var að fara að losa sig við boltann eftir að hafa gripið hornspyrnuna.49. mín
María Gros með þrumuskot fyrir utan völlinn sem Cecilía Rán rétt náði að blaka í horn.
47. mín
InnMadeline Rose Gotta
ÚtHulda Karen Ingvarsdóttir
Ég hreinlega veit ekki hvað kom fyrir Huldu Karen en þegar leikurinn átti að fara að hefjast leit línuvörðurinn niður brekkuna sem leikmenn koma inn á völlinn. Hulda Karen situr þar í tröppunum og er miður sín. Hún fær hér skiptingu.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn er hafinn. Engin breyting hefur verið gerð á liðunum en en leikmanna Þórs/KA skilaði sér ekki í hálfleik svo hún byrjar ekki seinni hálfleikinn. Liðið er manni færri. Hulda Karen er í aðhlynningu fyrir utan vallarsvæðið.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur í árbænum. Staðan 1 - 1. Komum aftur eftir korter.
45. mín
Bryndís Arnar í dauðafæri eftir aukaspyrnu en skallar boltann beint í fangið á Lauren Allen.
44. mín
Bryndís Arnar er komin inná aftur.
42. mín
Fylkir spilar manni færri eins og er meðan Bryndís Arnar fær aðhlynningu.
31. mín
Saga Líf með skot langt utan af velli rétt yfir mark Fylkis.
29. mín
Karen María með skot fyrir utan teig í hraðri sókn Þórs/KA en Cecilía Rán átti auðvelt með að grípa.
27. mín
Karen María í erfiðu færi í eig Fylkis en kom boltanum ekki á markið.
22. mín
Hulda Hrund með langskot utan af velli sem Lauren Allen átti auðvelt með að grípa.
19. mín
MAAAARK!
Eva Rut Ásþórsdóttir (stoðsending: Bryndís Arna Níelsdóttir )
Geggjað mark hjá Evu Rut. Bryndís Arna renndi boltanum til hliðar á hana og hún lét vaða af löngu færi beint upp í samskeytin. Staðan orðin 1 - 1.17. mín
Berglind með góða sendingu fram völlinn á Guðrúnu Karítas sem var með varnarmann í sér en skaut yfir markið.
15. mín
Jóhann Atli dómari er duglegur að lyfta gulum spjöldum síðustu mínúturnar. Ekkert alvarlegt að gerast samt. Tækling, tuð og leikaraskapur.
15. mín
Gult spjald
Hulda Hrund Arnarsdóttir
12. mín
Gult spjald
Arna Sif Ásgrímsdóttir
12. mín
Gult spjald
María Eva Eyjólfsdóttir
11. mín
MAAAARK!
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Arna Sif skallaði boltann og hann fór í gegnum þvögu og í markið. Ég hreinlega sá ekki hvort hann hafði viðkomu í einhverjum samherja henna á leiðinni.9. mín
Vesna Smiljcovic er á hægri kanti Fylkis, hún hefur í tvígang skapað hættu með góðum sendingum sínum. Fyrst var Guðrún Karítas dæmd rangstæð og svo var Stefanía aðeins of sein í boltann.
5. mín
Þetta fer rólega af stað. Liðin eru að þreifa fyrir sér á miðjum vellinum.
2. mín
Berglind Rós Ágústsdóttir fyrirliði Fylkis er komin ofar á völlinn og spilar sem miðjumaður í dag.
1. mín
Leikur hafinn
Fylkir byrjar með boltann og leikur í áttina að íþróttahúsinu.
Fyrir leik
Liðin ganga nú út á völlinn og stutt í leik. Fylkir að venju í appelsínugulum peysum og buxum en gestirnir í Þór/KA í alsvörtum búningum.
Fyrir leik
Fylkir tapaði síðasta leik gegn Þróttii 2 - 1. Kjartan Stefánsson þjálfari liðsins gerir eina breytingu á liðinu frá þeim leik. Íris Una Þórðardóttir kemur in fyrir Þórdísi Elvu Ágústsdóttur.
Þór/KA tapaði heima gegn Val í síðasta leik 0 - 2. Frá þeim leik gerir Andri Hjörvar Albertsson þjálfari tvær breytingar. Margrét Árnadóttir og Saga Líf Sigurðardóttir koma inn fyrir þær Magdaline Rose Gotta og Karen Maríu Sigurðardóttur.
Þór/KA tapaði heima gegn Val í síðasta leik 0 - 2. Frá þeim leik gerir Andri Hjörvar Albertsson þjálfari tvær breytingar. Margrét Árnadóttir og Saga Líf Sigurðardóttir koma inn fyrir þær Magdaline Rose Gotta og Karen Maríu Sigurðardóttur.
Fyrir leik
Það rignir í Árbænum og örlítill vindur sem mun ekki hafa nein áhrif á þennan leik. 11 stiga hiti líka svo það verður þægilegt að sitja undir þakinu í stúkunni í dag fyrir þau 100 sem mæta fyrst og fylla upp í áhorfendahámarkið.
Fyrir leik
Jóhann Atli Hafliðason dæmir leikinn í dag og er með þá Svein Tjörva Viðarsson og Sigurð Schram sér til aðstoðar á línunum.
Enginn skiltadómari er á leiknum að þessu sinni en KSÍ sendir Jón Sveinsson á leikinn til að hafa eftirlit með umgörð og störfum dómara.
Enginn skiltadómari er á leiknum að þessu sinni en KSÍ sendir Jón Sveinsson á leikinn til að hafa eftirlit með umgörð og störfum dómara.
Fyrir leik
Liðin mættust í 4. umferðinni 24. júlí síðastliðinn og þar leikið á Akureyri og leiknum lauk með 2 - 2 jafntefli.
Margrét Björg Ástvaldsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir skoruðu fyrir Fylki og Margét Árnadóttir skoraði fyrra mark Þórs/KA, það síðara var sjálfsmark Þórdísar Elvu Ágústsdóttur.
Margrét Björg Ástvaldsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir skoruðu fyrir Fylki og Margét Árnadóttir skoraði fyrra mark Þórs/KA, það síðara var sjálfsmark Þórdísar Elvu Ágústsdóttur.
Fyrir leik
Þessi leikur er í 13. umferð deildarinnar en útaf Covid frestunum hefur Fylkir bara spilað 10 leiki í sumar og Þór/KA 11 leiki.
Fylkir er í 4. sæti deildarinnar með 16 stig, jafnmörg og Selfoss sem er í 3. sætinu.
Þór/KA er í 11. sætinu með 11 stig.
Fylkir er í 4. sæti deildarinnar með 16 stig, jafnmörg og Selfoss sem er í 3. sætinu.
Þór/KA er í 11. sætinu með 11 stig.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Þórs/KA í Pepsi Max-deild kvenna.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Wurth vellinum í Árbænum.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Wurth vellinum í Árbænum.



