Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Eimskipsvöllurinn
Sól og lítill vindur. 11 gráður.
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 1
ÍBV
ÍBV
Kairo Asa Jacob Edwards-John (misnotað víti) 10'Jens Elvar Sævarsson 52'0 - 190' Felix Örn Friðriksson
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson

SKÝRSLAN: Grátlegt fyrir heimenn í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar vörðust mjög vel á móti miklu pressu Eyjamanna, en þeir náðu ekki að þrauka til lok leiksins og Eyjamenn náðu mark á 90. mínútu leiksins.

Bestu leikmenn

1. Felix Örn Friðriksson

Var frábær í vörn hjá ÍBV og skoraði svo eina mark leiksins. Hann bjó til mörg færi í leiknum og setti mikla pressu á vörn Þróttara.

2. Halldór Páll Geirsson

Hreint mark og varði víti. Flottur leikur hjá Halldóri í markinu.

Atvikið

Atvik leiksins er ekkert annað en víta klúður hjá Kairo og mark Sem Feilx Örn skoraði í lok leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Eyjamenn halda sér í öðru sæti með 22 stig í deildinni. Þróttarar eru ennþá í 11. sæti með 7 stig í deildinni.

Vondur dagur

Kairo Edwards-John átti fínan leik, en klúðraði þótt bæði víti og var lélegur í aukspyrnum sem hann tók. Hann gat komið Þrótti yfir á 10. mínútu með víti en skot hans lélegt. Hann mun vilja gleyma þessum leik fljótt.

Dómarinn - 8.5

Flottur leikur hjá dómaranum í leik sem ekki alltof mikið gerðist. Lítið spjaldað nema Jens Elvar aðstoðarþjálfari Þróttar sem fékk líta á sig rautt spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.