Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi Max-deild karla
Dalvíkurvöllur
Kalt og skýjað. Topp gervigras
KA
KA
1 - 2
KR
KR
22' Kristján Flóki Finnbogason0 - 141' Kjartan Henry FinnbogasonElfar Árni Aðalsteinsson 42'1 - 11 - 245' Pálmi Rafn Pálmason (víti)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: KR sigldi sigrinum heim í síðari hálfleik

Hvað réði úrslitum?

KR var einum færri í tæpar 80 mínútur en skora fyrsta markið og fá víti undir lok fyrri hálfleiks og komast aftur yfir. KA var með boltann nánast allan síðari hálfleikinn en sóknarleikurinn heldur hugmyndasnauður, ég hef ekki tölu á því hvað Hallgrímur átti marga krossa í síðari hálfleiknum. Vörnin hjá KR hélt og Beitir stórkostlegur í markinu.

Bestu leikmenn

1. Beitir Ólafsson

Algjörlega stórkostlegur í rammanum! KA lá á KR í síðari hálfleik og Beitir átti margar góðar vörslur. Bjargaði klárlega því að KA skyldi ekki jafna leikinn.

2. Kristinn Jónsson

Frábær undirbúningur hjá honum í fyrra marki KR, fiskaði vítið og ógnaði mikið með stórhættulegum krossum. Stóð vaktina vel í vörninni í síðari hálfleik.

Atvikið

eftir 22 mínúnta leik fékk Kristján Flóki tvö gul spjöld á 30 sekúndum og þar með rautt. Fyrra gula spjaldið fyrir mótmæli en hann vildi fá víti og það síðara fyrir brot á Sveini Margeiri

Hvað þýða úrslitin?

KR fer uppfyrir KA í 4. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 11 leiki, fjórum stigum á eftir Breiðablik og Víking. KA er í 5. sæti með 17 stig og á leik til góða.

Vondur dagur

Afskaplega hugmyndasnauður sóknarleikur hjá KA mönnum. Einum fleiri frá 20. mínútu og hanga í sókn allan síðari hálfleikinn en alltaf sama uppskriftin sem augljóslega var ekki að ganga upp.

Dómarinn - 8

Það var nóg um að vera hjá Ívari í dag, dæmir rautt spjald og menn voru duglegir að tuða en ég held að hann hafi bara leyst þetta mjög vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.