SKÝRSLAN: Fjör og dramatík í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Spurning sem er hreinlega vandsvarað eftir svona leik. Getum alveg skellt skuldinni á varnarleik beggja liða sem fá á sig þrjú mörk en að sama skapi má segja að augnabliks einbeitingarleysi í uppbótartíma hafi kostað Aftureldingu tvö aukastig.
Bestu leikmenn
1. Pedro Vazquez
Er ofboðslega góður í fótbolta. Var iðin við að finna samherja sína með góðum sendingum og stýrði sóknarleik gestanna. Skoraði mark úr víti en fór illa með nokkur færi sem hefðu getað skorið á milli.
2. Sigurður Bjartur Hallsson
Sveitastrækerinn heldur áfram að skora. Dúkkar upp á réttum stað á réttum tíma eins og framherja sæmir. Kominn með 9 mörk eftir 10 leiki og er svo sannarlega að springa út.
Atvikið
Eftir um 20 mínútna leik átti Aron Dagur Birnuson stórkostlega markvörslu í stöðunni 1-0 fyrir Aftureldingu. Arnór Gauti í markteignum virtist ekki geta annað en skorað en á einhvern ótrúlegan hátt tókst Aroni að henda sér fyrir skot hans og verja með tilþrifum. Afturelding 2-0 eftir 20 mín hefði breytt leiknum all verulega.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík situr áfram í þriðja sæti en er nú 4 stigum frá ÍBV sem vann sinn leik í kvöld. Grindavík fer næst til Ólafsvíkur og leikur þar við Víkinga. Afturelding er í sjöunda sætinu stigi á eftir Fjölni og tekur á móti toppliði Fram næst.
Vondur dagur
Fékk veður af því í hálfleik að dómari leikins hafi vísað starfsmanni í gæslu frá vellinum vegna orðbragðs. Skellum vondum degi á hann fyrir það.
Dómarinn - 7
Fínasti leikur hjá Elíasi og í raun lítið upp á hann að klaga.


