Fotbolti.net
Unnar Jóhannsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Blautt gervigras, til fyrirmyndar
Grótta
Grótta
3 - 2
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Pétur Theódór Árnason 33'1 - 0Pétur Theódór Árnason 39'2 - 02 - 150' Anel CrnacPétur Theódór Árnason 57'3 - 13 - 294' Guðfinnur Þór Leósson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: Um 150
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Tap í endurkomu Gauja Þórðar

Hvað réði úrslitum?

Pétur Theódór var munurinn á liðunum í dag. Skoraði þrennu og var sífellt ógnandi. Hann hefur mikil gæði í sínum leik.

Bestu leikmenn

1. Pétur Theódór

Skoraði þrennu með hausnum og hefði getað skorað fleiri mörk, sérstaklega í fyrri hálfleik.

2. Kristófer Orri

Var öflugur á miðju Gróttmanna í dag. Mikil gæði í þessum strák

Atvikið

Guðjón Þórðarsson mætti að stýra Ólafsvíkingum í dag, það er stórt.

Hvað þýða úrslitin?

Gróttumenn komnir með sigur eftir langa taphrinu og koma sér í 11 stig. Ólsarar sitja sem fastast á botninum með 1 stig

Vondur dagur

Kareem Isiaka. Sást lítið til hans í fremstu víglínu gestanna en gef honum það að hann fékk úr litlu að moða. Miðverðir Gróttu voru með hann allan tímann.

Dómarinn - 9

Egill og hans menn voru flottir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.