Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
Fram
Fram
4 - 3
Kórdrengir
Kórdrengir
Albert Hafsteinsson 7'1 - 01 - 121' Aron Þórður Albertsson (sjm)Albert Hafsteinsson 35'2 - 12 - 243' Connor Mark Simpson2 - 352' Leonard Sigurðsson55' Davíð Þór ÁsbjörnssonAlex Freyr Elísson 57'3 - 3Albert Hafsteinsson 67'4 - 3
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Þrenna í einum skemmtilegasta leik sumarsins

Hvað réði úrslitum?

Rauða spjald Davíðs Þórs Ásbjörnssonar hafði mikil áhrif á leikinn. Gæði, sjálfstraust og agi Framara kom þeim síðan yfir í leiknum manni fleiri. Það var ekki sjálfsagt.

Bestu leikmenn

1. Albert Hafsteinsson

Þrenna frá manninum. Það þarf ekkert að segja neitt meira.

2. Alex Freyr Elísson

Mark og stoðsending. Fjölmargir leikmenn sem gerðu tilkall úr báðum liðum.

Atvikið

Rauða spjald Davíðs Þórs breytti gangi leiksins og svo má ekki taka það af Alberti Hafsteinssyni að hafa skorað þrennu í leiknum. Heilt yfir var leikurinn frábær skemmtun.

Hvað þýða úrslitin?

Fram eru ennþá á toppi deildarinnar taplausir og verða á toppnum eitthvað á næstunni í það minnsta. Kórdrengir eru nú sex stigum á eftir 2. sætinu eftir sigur ÍBV í kvöld, í 4. sæti deildarinnar. Þeir mæta Vestra í næstu umferð en liðin eru jöfn að stigum.

Vondur dagur

Davíð Þór Ásbjörnsson verður líklega lengi að sofna í kvöld. Var frábær í leiknum sjálfum og hjálpaði liðinu mikið að komast yfir með mikilli baráttu og gæðum. En svona reynslu mikill leikmaður verður að vita betur þegar hann rennur sér í tæklingu á miðjum vellinum, á gulu spjaldi.

Dómarinn - 7,6

Hátt erfiðleika stig í leiknum. Arnar Þór stóðst prófið og gott betur. Nokkur erfiðar ákvarðanir sem hann þurfti að taka í leiknum og frá fjölmiðlastúkunni séð, voru þeir lang flestar hárréttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.