Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
Eimskipsvöllurinn
Logn, léttskýjað og 13 gráður
0 - 3
Kórdrengir
Kórdrengir
0 - 13' Hreinn Ingi Örnólfsson (sjm)0 - 279' Leonard Sigurðsson0 - 392' Magnús Andri Ólafsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Kórdrengir sólgnir í Pepsi Max sætið

Hvað réði úrslitum?

Kórdrengir hreinlega kæfðu Þróttara og sáu til þess að þeir sköpuðu sér sárafá færi. Gestirnir voru sterkari, þéttari, áttu miðsvæðið og unnu verðskuldaðan og sannfærandi sigur í Laugardalnum.

Bestu leikmenn

1. Davíð Þór Ásbjörnsson - Kórdrengir

Það er gömul saga og ný. Davíð setur tóninn hjá Kórdrengjum og er þeim gríðarlega mikilvægur. Hefur átt geggjað tímabil.

2. Alex Freyr Hilmarsson - Kórdrengir

Hans fyrsti leikur og hann er strax farinn að sýna gæði sín. Er með Pepsi Max gæði sem gætu hjálpað Kórdrengjum alla leið upp í Pepsi Max.

Atvikið

Sjálfsmarkið strax í byrjun. Þróttaraliðið var allt á hælunum frá því flautað var til leiks og þar til flautað var til hálfleiks.

Hvað þýða úrslitin?

Það lyktar af mögulegu einvígi milli Kórdrengja og ÍBV til loka mótsins um annað sætið í deildinni. Kórdrengir sækja að Eyjamönnum sem eru sem stendur í öðru sætinu. Þróttarar halda enn í vonina um að geta komist uppfyrir Selfyssinga og stefnir í að sú barátta muni standa allt fram í lokaumferð.

Vondur dagur

Hreinn Ingi Örnólfsson skoraði sjálfsmark snemma leiks og átti auk þess í ýmsu brasi. Annars var allt Þróttaraliðið skammarlega lélegt í fyrri hálfleiknum en sýndi mun skárri frammistöðu eftir hlé.

Dómarinn - 6,5

Örlítið kaflaskipt hjá dómaranum en hann hafði engin áhrif á úrslitin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.