SKÝRSLAN: Baráttan og varnarvinnan skilaði að lokum engu gegn toppliðinu
Hvað réði úrslitum?
Eyjakonur voru gríðarlega öflugar varnarlega nánast allan leikinn og gerðu Valsliðinu mjög erfitt fyrir. Valskonur óðu í færum allan leikinn en boltinn vildi ekki inn. Undir lokin fékk ÍBV dauðafæri til að stela sigrinum en í staðinn fór Valur upp hinum megin og hirti öll þrjú stigin.
Bestu leikmenn
1. Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Alltaf hætta í kringum hana. Virklega öflugur leikmaður sem erfitt er að ná boltanum af, og erfitt að ráða við. Lagði upp sigurmarkið fyrir Fanndísi.
2. Antoinette Jewel Williams (ÍBV)
Miðverðir ÍBV voru báðar mjög góðar en mér fannst Antoinette sérlega góð. Bjargaði oft meistaralega og var lykilmaður í varnarleik ÍBV. Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, gerði líka sterkt tilkall í þessa tilnefningu.
Atvikið
Dauðafærið sem Clara Sigurðardóttir fékk í sókninni áður en Valur skoraði. Þar hefði hún getað stolið sigrinum en Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals, varði frábærlega. Annars þurfti Sandra ekkert að gera meira í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Valur heldur góðu forskoti sínu á toppnum. ÍBV siglir lygnan sjó um miðja deild en gætu blandast í fallbaráttuna ef þær sækja ekki nokkur stig á lokametrunum.
Vondur dagur
Færanýting Vals var skelfileg. Þær hefðu getað skorað þrjú, fjögur mörk á fyrstu fimm mínútunum. Þetta skráist á sóknarmenn Vals sem verða að nýta færin sín betur, annars mun það kosta þær dýrt.
Dómarinn - 8
Hann og hans aðstoðarmenn stóðu sig með prýði.



