Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Keflavík
Keflavík
Pepsi-Max deild kvenna
HS Orku völlurinn
1 - 2
Fylkir
Fylkir
Tina Marolt 15'1 - 01 - 135' Bryndís Arna Níelsdóttir 1 - 273' Bryndís Arna Níelsdóttir
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Fylkir vann fallbaráttusigur á útivelli

Hvað réði úrslitum?

Keflavík gaf tvö slök mörk og náði ekki að skora sitt annað mark í leiknum vegna öflugrar varnar Fylkis.

Bestu leikmenn

1. Bryndís Arna Níelsdóttir

Bryndís skorar bæði mörkin fyrir Fylkir eftir mjög góða frammistöðu. Því miður meiðist Bryndís í loka mínútum leiksins, en kemur vonandi strax tilbaka.

2. Aerial Chavarin

Lang áberust í leiknum. Spilaði mjög vel, þrátt fyrir tap á heimavelli.

Atvikið

Atvik leiksins var loka mínútur leiksins. Keflavík áttu mörg færi í loka mínútunum. En Fylkir voru líka oft nálægt með því að klára leikinn. Það var allir í stúkunni í miklu stressi.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir fara upp úr fallbaráttu í 8 sæti með 12 stig og Keflavík eru einir í neðsta sæti með 9 stig.

Vondur dagur

Tiffany og vörn Keflavík voru með slakan leik. Þau gáfu Fylkir sitt fyrsta mark á silfurfati og fá svo aftur á sig annað ódýrt mark.

Dómarinn - 6.5

Dæmdi oft allt of seint á hluti og dæmdi líka mikið á mjög lítil brot í leiknum. Sá allavega einusinni þar sem leikmaður dettur án snertingu, en fékk samt aukaspyrnu fyrir það. Dómarinn bæti líka 10 mínútur við leikinn fyrir enga sem litla ástæðu fyrir því.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.