Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
Fram
Fram
2 - 1
Grótta
Grótta
Þórir Guðjónsson 7'1 - 01 - 169' Gabríel Hrannar EyjólfssonHaraldur Einar Ásgrímsson 81'2 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Fram aðeins tveimur stigum frá Lengjudeildartitilinum!

Hvað réði úrslitum?

Góðar skyndisóknir og flottur varnaleikur Fram er ástæðan fyrir því að þeir taka hér þrjú stig úr þessum leik. Þrátt fyrir að vera einum færri í yfir 60 mínútur, gáfust Fram aldrei upp.

Bestu leikmenn

1. Haraldur Einar Ásgrímsson

Haraldur Einar var frábær í varnarleiknum og átti stórkoslegt sigurmark í leiknum. Á ekkert annað skilið en að vera maður leiksins.

2. Kyle McLagan

Stórkoslegur í vörninni hjá Frömurum í dag, sem er ekkert nýtt.

Atvikið

Atvik leiksins var að sjálfsögu rauða spjaldið sem Gunnar Gunnarsson fékk snemma í leiknum. En svo markið sem Halli Einars skoraði á 81. mínútu sem tryggði Fram þrjú stig.

Hvað þýða úrslitin?

Fram er aðeins tvemur stigum frá því að vinna titilinn með þrjá leiki eftir og sitja í fyrsta sæti með 51 stig. Grótta situr enn í fimmta sæti með 29 stig í deildinni.

Vondur dagur

Grótta átti vondan dag. Þrátt fyrir að ná að setja mikla pressu á Fram með einum manni fleiri, þá voru Framarar bara allt of sterkir í vörninni og áttu fínar skyndisóknir. Grótta hafði bara engan séns að ná þremur stigum gegn frábæru liði Framara.

Dómarinn - 8.0

Egill Arnar átti góðan leik miða við aðstæður. Mikið af áhorfendunum hrópuðu ljót orð á dómarann. Hann dæmdi mikið vel og þurfti að taka nokkrar stórar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.