SKÝRSLAN: Selfoss vann í Ólafsvík og felldi Víkinga í leiðinni
Hvað réði úrslitum?
Það voru 2 punktar sem virtist gera út um leikinn, það var seinna mark Selfoss sem skoraði í uppbótar tíma fyrri hálfleiks og svo þegar Markmaður Selfoss ver víti og frákastið, eftir það var lítið sem Víkingar gátu gert.
Bestu leikmenn
1. Ingvi Rafn Óskarsson
Hann var allt í öllu á miðjunni, duglegur í vörn og svo lagði hann upp 2 mörk í leiknum, seinni stoðsendingin var glæsileg á Gary Martin, sem fékk beint í hlaupalínu sína, flottur leikur hjá Ingva
2. Valdimar Jóhannsson
Hann skoraði og lagði upp í leiknum, var mjög ógnandi fram á við.
Atvikið
Vítið.. Víkingar hefðu geta komið sér inn í leikinn með 20 mín eftir, en það er ekki búið að vera nein lukka með liðinu allt tímabilið.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss er komið uppí 9. sæti með 21 stig og eru 2 stigum ofar en Þór sem eru komnir í 10. sæti.
Víkingur er hér með fallið eftir hræðilegt tímabil.
Vondur dagur
Ætla ekki að sparka í liggjandi menn Víkinga, en þetta var bara ekki þeirra dagur, þeir reyndu og reyndu, en það bara gengur aldrei neitt upp hjá þeim á síðasta fjórðungi, og svo einbeitingarleysið sem dettur inn í öllum leikjum.
Dómarinn - 8,5
Flottur leikur hjá Einari dómara, það var kominn smá hiti í leikinn hjá leikmönnum og hann lét þá alveg vita að það væri ekki boði, svo hann náði að róa leikmenn í seinni hálfleiknum eins og fagmaður


