SKÝRSLAN: Afturelding fer langleiðina með að fella Þrótt
Hvað réði úrslitum?
Arnór Gauti er maskína og það réði úrslitum vörn Þróttara réð ekkert við hann og hann hefði alveg getað sett fleiri mörk ef eitthvað er.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Ragnarsson (Afturelding)
Þegar maður skorar þrennu og dominerar svona leikinn þá áttu ekkert annað skilið en að vera maður leiksins.
2. Valgeir Árni Svansson (Afturelding)
Hvar er Valli? Jú hann er út um allt. Hann átti mikinn þátt í sóknum Aftureldingar og náði að stöðva nokkrar sóknir Þróttara.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn á 4 mínútu. Þróttarar vildu meina að það hefði verið ,,soft" en þó að þetta var engin ofsa tækling þá var þetta bara klaufalegt og hárréttur dómur.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding færir sig upp í 8. sæti með 22 stig og eru þar með tryggðir áfram í Lengjudeildinni.
Þróttarar eru hinsvegar áfram í 11.sæti með 11 stig og ef Þórsarar ná einu stigi úr leik sínum gegn Fjölni sem er í gangi þegar þetta er skrifað þá eru Þróttarar fallnir.
Vondur dagur
Vörn Þróttara. Þessir varnarmenn eiga líkast til eftir að hafa martraðir af skallanum á Arnóri Gauta þar sem hann fór illa með það trekk í trekk.
Dómarinn - 9
Þorvaldur Árnason og hans teymi gerðu mest allt rétt og þegar það færðist smá harka í leikinn var hann góður að láta leikinn fljóta. Topp frammistaða hjá þessum mönnum.



