SKÝRSLAN: Seiglusigur Garðbæinga á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Seigla Garðbæinga í þessum leik var rosaleg, það leit allt út fyrir að Valur væru að fara vinna þennan leik miðað við hversu mikið þeir sóttu í stöðunni 1-1 en varnarleikurinn var frábær allan leikinn og Stjörnumenn náðu
Bestu leikmenn
1. Björn Berg Bryde
Geggjaður í kvöld, skallaði og hreinsaði allt frá sem kom nálægt honum og var lykilmaðurinn í varnarleiknum. Skorar svo geggjað mark sem tryggir Stjörnumönnum stigin þrjú.
2. Haraldur Björnsson
Erfitt að finna næst besta leikmanninn en Halli Björns var virkilega solid í kvöld og var virkilega öruggur í öllum sínum aðgerðum og kom til bjargar þegar liðsfélagar hans þurftu á honum að halda.
Atvikið
Langar að setja markið hans BBB en ætla að setja bæði dauðafæri Valsara í seinni hálfleik en Sverrir klikkaði dauðafæri og Tryggvi Hrafn klúðraði dauðafæri fyrir opnu marki í stöðunni 1-1, Valsmenn hefðu getað svæft þennan leik auðveldlega í seinni hálfleik en þeim brást logalistin.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn sitja í 2. sæti deildarinnar eins og staðan er akkurat núna en Víkigar eiga leik inni gegn FH, Blikar geta nælt sér í 5 stiga forskot á toppi deildarinnar á morgun ef Víkingar tapa og Blikar vinna Fylki. Stjörnumenn eru komnir í 7. sæti með 22 stig og björguðu sér endanlega frá falli í kvöld með sigri.
Vondur dagur
Sverrir Páll Hjaltested fékk traustið í dag og hélt Patrick Pedersen á bekknum en Sverrir átti mjög slakan dag fyrir framan markið, var ágætur í uppspilinu en hann fær eitt mjög gott færi í fyrri hálfleik í 0-0 sem hann skallar framhjá og sannkallað dauðafæri í stöðunni 1-1, mark þar og Valur hefðu tekið stigin þrjú en hann setti boltann yfir markið.
Dómarinn - 7
Jóhann Ingi og hans teymi bara nokkuð solid, ekkert rosalega stór atvik sem þeir þurftu að glíma við, flæði leiksins var gott og bara overall solid frammistaða.



