SKÝRSLAN: Uppbótartíminn varð Grindavík enn og aftur að falli
Hvað réði úrslitum?
Fáir þú þig sigurmark einu sinni í uppbótartíma ertu óheppinn. Tvisvar sinnum og þá þarftu að fara hugsa þinn gang en þegar það gerist í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum er nokkuð ljóst að þú ert að gera eitthvað rangt eða ert í einu óheppnasta liði sem fyrir finnst.
Kórdrengir mega þó eiga það að þeir börðust vel fyrir sínu og unnu fyrir sigrinum en hjálpi mér hvað saga Grindavíkur er orðin sorgleg þetta sumarið.
Bestu leikmenn
1. Loic Mbang Ondo
Naut að burðum í miðri vörn Kórdrengja. Vörn Kórdrengja var þétt og með Alexander Pedersen öruggann þar fyrir aftan komst Grindavík lítt áleiðis.
2. Alex Freyr Hilmarsson
Það er fínn ávani góðra leikmanna að poppa upp á réttum augnablikum fyrir sín lið. Að skora mark í uppbótartíma og tryggja sínu liði stigin þrjú á sínum gamla heimavelli og fagna því vel er gott augnabli að eiga.
Atvikið
Sigurmark Alex Freys að sjálfsögðu. Uppbótartími, manni færri og Grindvíkingar að reyna sækja mark. En enn og aftur eru þeir slegnir í rot.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir eru enn í þriðja sætinu en nú stigi á eftir ÍBV sem á þó tvo leiki til góða. Grindavík situr í því sjöunda og hefur að engu að keppa.
Vondur dagur
Sálarlíf Grindvíkinga fékk enn eitt höggið í dag. Yndislegt fólk þar sem gott er heim að sækja en mikið hrikalega held ég að það sé svekkjandi að vera stuðningsmaður þessa dagana. Áfram gakk þó.
Sigurbjörn Hreiðarsson hlýtur að eiga erfitt með svefn þessa dagana sömuleiðis því óheppni í uppbótartíma er slík að annað eins hefur vart sést.
Dómarinn - 6,5
Heilt yfir fínasti leikur en það er spurning hvort Grindavík hafi átt að fá víti í síðari hálfleik. Eins var sérstakur dómur í fyrri hálfleik þar sem hann dæmir óbeina aukaspyrnu en hættir svo við af einhverjum ástæðum.


