SKÝRSLAN: Fjölnismenn mættu á Domusnovavöllin og sóttu sigur á Kórdrengjum
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn voru sprækari í dag en Kórdrengir virkuðu rosalega bensínlausir í dag. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Hans Viktor mætti inn á völlinn í byrjun seinni hálfleiks og kláraði leikinn. Kórdrengir fengu þó nokkur tækifæri sem Sigurjón Daði varði rosalega vel.
Bestu leikmenn
1. Sigurjón Daði Harðarson (Fjölnir)
Sigurjón getur verið sáttur með sig eftir leikinn í dag. Átti nokkrar lykilvörslur í stöðunni 0-1 fyrir Fjölni og var heilt yfir mjög öruggur í rammanum hjá Fjölni í dag.
2. Hans Viktor Guðmundsson (Fjölnir)
Byrjaði á bekknum hjá Fjölnismönnum í dag en mætti inn á í hálfleik og var öflugur á miðjunni hjá Fjölnismönnum. Skoraði tvö mörk í seinni hálfleik. Góð innkoma frá Hansa í dag.
Atvikið
Innkoma Hans Viktors - Mætti inn á leikinn í upphafi seinni hálfleiks og kláraði leikinn fyrir Fjölni.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir eru áfram í þriðja sæti deildarinnar með 37.stig. Fjölnismenn eru í fjórða sætinu með 33.stig og á liðið leik inni á Kórdrengi.
Vondur dagur
Kórdrengir - Voru rosalega bensínlausir inni á vellinum í dag en liðið hefur leikið marga leiki upp á síðkastið. Liðið fær núna 7.daga hvíld fram að næsta leik.
Dómarinn - 10
Elías Ingi og hans menn dæmdu þennan leik frábærlega.



