SKÝRSLAN: Fram tryggðí sér Lengjudeildartitilinn í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Lið með sjálfsöryggi mætti liði sem hafði það ekki. Leikurinn sem slíkur var alveg jafn að kalla í erfiðum aðstæðum en lið Fram virkaði bara öruggara með sig og gerði sitt í að klára leikinn.
Bestu leikmenn
1. Albert Hafsteinsson
Skoraði tvö mörk í kringum vítaspyrnu. Fylgdi fyrst eftir lélegri vítaspyrnu sinni og skoraði en skoraði úr spyrnu númer tvö síðar í leiknum. Þess utan var hann ógnandi framan af í leiknum og gerði sitt af fagmennsku.
2. Hlynur Atli Magnússon
Öflugur í vörn Fram í dag og hélt Sigurði Bjarti Hallssyni vel í skefjum.
Atvikið
Stuðningsmenn Fram kölluðu eftir því að Ólafur Íshólm léti vaða á markið undan vindi úr eigin teig. Var nálægt því í eitt skipti á 78.mínútu þegar löng hreinsun hans skoppaði fyrir framan Aron í marki heimamanna sem virkaði óviss en handsamaði þó boltann.
Hvað þýða úrslitin?
Fram tryggir sér endanlega efsta sæti deildarinnar og getur klárað taplaust. Grindavík siglir sinn lygna sjó og getur hugsað um næsta tímabil.
Vondur dagur
Erfitt að ætla sér að taka einhvern út. Setjum boltann sjálfan hér sem fékk lítið að njóta sín í rokinu í dag.
Dómarinn - 8
Ekkert upp á Jóhann að klaga bæði vítin rétt frá mér séð. Var lítið að stressa sig á velli og stýrði leiknum af röggsemi.


