Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Pepsi-Max deild kvenna
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
1 - 1
Valur
Valur
0 - 13' Ída Marín HermannsdóttirAerial Chavarin 35'1 - 1
Dómari: Sigurður Óli Þórleifsson

SKÝRSLAN: Keflavík taka óvænt en mikilvægt stig gegn Íslandsmeisturunum

Hvað réði úrslitum?

Valur var lang mest með boltann í leiknum og sköpuðu fullt af færum. Það er eiginlega fáranlegt að Valur hafi ekki náð að skora annað mark gegn Keflavík. Minnir mig á hvernig Liverpool spilaði á móti varnasinnuðum liðum í fyrra, allt of mikið af færum en enginn til þess að klára þau.

Bestu leikmenn

1. Tiffany Sornpao

Klárlega sú lang besta í leiknum. Það væri ekkert 1 stig í þessum leik ánn Tiffany í markinu hjá Keflavík.

2. Ída Marín Hermannsdóttir

Átti frábært mark snemma í leiknum og geggjaðan fyrri hálfleik. Hvarf svo aðeins í seinni hálfleiknum, en það gerðu þær lang flestar í Vals liðinu hvort sem er.

Atvikið

Atvik leiksins var aðalega bara loka mínútur leiksins þar sem Valur var aðalega í sókn að reyna að ná í sitt annað mark og Keflavík að spila 'park the bus' til þess að ná þessu mikilvæga stigi.

Hvað þýða úrslitin?

Valur urðru Íslandsmeistarar í sínum fyrra leik og hefur það ekkert breyst. Keflavík eru í 8. sæti og eru 3 stigum fyrir ofan Tindastól og að auki með 7 fleiri mörk í markatölunni. Þannig Keflavík þarf aðeins 1 stig til þess að tryggja sér áfrahald í deildinni.

Vondur dagur

Það átti enginn neinn vondan dag í Keflavík. Það er að sjálfsögu slæmt að Valur hafi ekki náð 3 stig gegn Keflavík, en þau lögðu allt á sig og er hvort sem er Íslandsmeistarar, þannig það var enginn pressa á þeim fyrir þennan leik. Keflavík þurftu stig og náðu því og gerðu það með stæl.

Dómarinn - 9.0

Sigurður Óli átti góðan leik í skelfilegu veðri. Hann dæmdi vel í leik þar sem lítið af brotum fóru fram.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.