Fotbolti.net
Jón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Vestri
Vestri
2 - 0
Þór
Þór
Jesus Maria Meneses Sabater 42'1 - 0Benedikt V. Warén 85'2 - 0
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Enn og aftur mistekst Þórsurum að skora

Hvað réði úrslitum?

Vestri fengu fleiri færi og náðu að koma tveimur þeirra í netið. Eins og taflan sýnir eru Vestramenn sterkara lið og það voru meiri gæði í þeirra leik þegar á reyndi, bæði í færasköpun og nýtingu.

Bestu leikmenn

1. Benedikt Warén

Mark, stoðsending, skot í stöng og skot í slá. Hann var stórhættulegur í dag og bar af í sóknarleik Vestra.

2. Brenton Muhammad

Erfiðar aðstæður fyrir markmann, blautt, gríðarlega hvasst og auðvelt að gera mistök. Hann gerði ekkert af þeim og varði vel þegar á þurfti að halda.

Atvikið

Fyrsta markið. Ekki mikið að gerast fram að því og það var augljóst að fyrsta markið myndi skipta miklu máli. Chechu Meneses, sem var góður í vörn Vestra í dag skoraði það rétt fyrir hlé. Mikilvægt fyrir heimamenn sem voru á móti stífum vindi í síðari hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri á ágætis möguleika á að enda í þriðja sæti sem yrði afar fínn árangur, en Þór á enn tölfræðilegan möguleika á að falla þó það sé enn afar ólíklegt.

Vondur dagur

Sóknarlína Þórs. Það voru möguleikar í þessum leik og færi sem mér fannst þeir eiga að gera betur. Þetta er sjöundi deildarleikurinn í röð sem Þór skorar ekki og virðast þeir ekki hafa mikið sjálfstraust fyrir framan markið.

Dómarinn - 8

Fannst hann hafa góða stjórn á þessum leik. Ekki mörg stór atvik en oft þegar þessi lið mætast hefur leikurinn hlaupið upp en það gerðist ekki í dag að neinu ráði. Afar ódýrt gult spjald á Pétur Bjarnason er að endingu rándýrt því hann verður í banni í næsta deildarleik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.