Fotbolti.net
Ingi Snær Karlsson
Mjólkurbikar karla
Malbikstöðin að Varmá
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
0 - 2
Kórdrengir
Kórdrengir
0 - 158' Arnleifur Hjörleifsson0 - 284' Þórir Rafn Þórisson (víti)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Leik lokið!
Kórdrengir áfram í bikar!

90. mín
Kórdrengir skora en aukaspyrna dæmd fyrir Hvíta.
90. mín
Þórir Rafn tekur vel á móti boltanum og á síðan skot sem fer í varnarmann og í innkast.
88. mín
Aron Daði reynir sendingu í gegn en Óskar vel vakandi í markinu.
Hvíti riddarinn
87. mín
InnGuðjón Ingi Pétursson
ÚtEgill Jóhannsson
86. mín
Fatai með góða sendingu á Hákon Inga sem sendir boltann fyrir markið en Guðjón Breki með góða tæklingu og sparkar boltanum burt.
Kórdrengir
84. mín
Mark úr víti!

Þórir Rafn Þórisson

Skorar af miklu öryggi.
Hvíti riddarinn
83. mín
Gult spjald

Birkir Haraldsson

83. mín
Kórdrengir fá víti!

Marinó Hilmar tekur snertingu framhjá Birki í markinu sem tekur hann niður.
82. mín
Kórdrengir næstum því búnir að skora þarna!

Arnleifur tekur horn með miklum snúning og Birkir ver boltann í slánna!
Hvíti riddarinn
80. mín
InnGylfi Hólm Erlendsson
ÚtEiður Andri Thorarensen
Hvíti riddarinn
80. mín
InnDaníel Búi Andrésson
ÚtKolfinnur Ernir Kjartansson
Hvíti riddarinn
80. mín
InnEiríkur Þór Bjarkason
ÚtGuðbjörn Smári Birgisson
77. mín
Birkir ver vel frá Þóri en rangstaða dæmd.
75. mín
Patrekur Orri með frábæra sendingu á Eið Andra en skýtur beint í Kristófer Reyes sem var fljótur tilbaka.
71. mín
Kórdrengir fá horn sem Ondo skallar yfir.
Kórdrengir
68. mín
Gult spjald

Kristófer Jacobson Reyes

Kristófer fer í tæklingu á Guðbjörn og fer í boltann en sýnir takka og uppsker spjald.
66. mín
Fatai á skiptingu yfir á Arnleif sem skallar í varnarmann og í horn.
Hvíti riddarinn
63. mín
InnÍsak Máni Viðarsson
ÚtBjörgvin Heiðar Stefánsson
Kórdrengir
63. mín
InnHákon Ingi Einarsson
ÚtÓskar Atli Magnússon
61. mín
Patrekur Orri nær lausum skalla á markið eftir langt innkast en Óskar á ekki í vandræðum með það.
Kórdrengir
58. mín
MAAAARK!

Arnleifur Hjörleifsson (stoðsending: Óskar Atli Magnússon)


Óskar Atli sendir hann inn í teig á fjærstöng og Arnleifur nær góðum skalla yfir Birki og í markið!
55. mín
Frábær skyndisókn hjá Hvíta!

Keyra þrír upp eftir horn hjá Kórdrengjum, Eiður Andri sendir hann yfir á Björgvin Heiðar sem þarf að renna sér í boltann og framhjá fer hann.
54. mín
Kári Jökull tæklar boltann í horn.
54. mín
Kórdrengir virðast ráðalausir með boltann.
49. mín
Fatai á skot sem fer himinhátt yfir.
Kórdrengir
46. mín
InnDaníel Gylfason
ÚtMagnús Andri Ólafsson
Skipting í hálfleik, Kórdrengir ætla að gera betur í seinni.
46. mín
Leikur hafinn
Kórdrengir byrja seinni.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik.

Viðurkenni að það kemur mér á óvart!
45. mín
Þórir Rafn á sprett upp kantinn og uppsker hornspyrnu.
41. mín
Kolfinnur Ernir fær boltann rétt fyrir utan teig Kórdrengja og á skot rétt yfir.

Þeir ætla ekkert að gefa eftir.
39. mín
Hvíti á langt innkast sem endar með að Björgvin Heiðar á skot sem fer í varnarmann og í annað innkast.
31. mín
Dauðafæri hjá Hvíta!

Daníel Ingi á frábæra sendingu innfyrir vörn Kórdrengja á Patrek Orra sem fíflar Ondo þegar hann hendir sér í tæklingu en Óskar ver meistaralega í horn!

Kórdrengir heppnir þarna!
30. mín
Sagan endalausa,

Kórdrengir eiga sókn en Hvíti riddarinn hreinsa burt.
27. mín
Nathan Dale á góða sendingu inn á Marinó Hilmar sem ætlar að koma honum í fyrsta inn á teiginn en heimamenn koma boltanum frá.
23. mín
Fatai á skot sem fer í varnarmann og í horn.
22. mín
Eiður Andri dæmdur rangstæður.
19. mín
Kári Jökull sparkar niður Magnús Andra þegar hann er að skýla boltanum.

Aukaspyrna sem Kórdrengir fá.
18. mín
Kórdrengir spila boltanum á milli sín og eru þolinmóðir í leit af glufum.
13. mín
Lítið um að vera, Hvítu riddararnir liggja djúpt tilbaka.
8. mín
Ondo skallar boltann beint upp í loft úr horninu og Birkir grípur hann.
7. mín
Kolfinnur Ernir potar boltanum í horn.
6. mín
Arnleifur Hjörleifsson með fyrirgjöf beint á Birkir Haraldsson í markinu.
4. mín
Óskar Atli fær aukaspyrnu við hliðarlínu.

Ætlar að taka sjálfur.
2. mín
Þarna munaði litlu!

Heimamenn hreinsa en boltinn fer í Þóri Rafn og í stöngina!
1. mín
Leikur hafinn
Hvíti riddarinn byrja!
Fyrir leik
Kórdrengir leika í Lengjudeildinni en Hvíti riddarinn spilar í 4. deild (A riðli).

Bæði lið hafa þó verið afar sannfærandi í Mjólkurbikarnum hingað til:

Kórdrengir hafa unnið ÍH 8-1 og Álftanes 5-0.

Hvítu riddararnir hafa unnið Stokkseyri 11-0 og RB 6-0.

Fyrir leik
Veriði hjartanlega velkomin á beina textalýsingu frá leik Hvíta Riddarans og Kórdrengja í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins.


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.