Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Mjólkurbikar karla
Kórinn
Alltaf bongó inn í Kórnum!
HK
HK
3 - 1
Grótta
Grótta
Stefán Ingi Sigurðarson 25'1 - 0Stefán Ingi Sigurðarson 54'2 - 02 - 191' Sigurður Hrannar ÞorsteinssonAtli Arnarson 94'3 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Þjálfaralausir HK áfram í Mjólkurbikarnum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum hér í dag eru mistök í varnarleik Gróttu sem leiða beint að marki. Stefán Ingi nýtti sér þessi mistök í tvígang og nánast kláraði leikinn fyrir HK.

Bestu leikmenn

1. Stefán Ingi Sigurðarson

Stefán frábær í dag, skoraði 2 mörk í dag. Nýtti sér mistök varnarmanna Gróttu mjög vel.

2. Ívar Orri Gissurason

Ívar Orri frábær í dag, hann lék framarlega á miðju. Spilaði vel og átti að fá eitt víti í leiknum.

Atvikið

Annað mark HK þar sem Arnar Þór Helgason fékk háann bolta tók skelfilega móttöku og Stefán Ingi nýttu sér það skoraði. 2 Fyrstu mörk HK eftir skelfileg mistök í vörn Gróttu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að HK fer áfram í 16. liða úrslit í Mjólkurbikarnum en Grótta dottnir úr leik.

Vondur dagur

Arnar Þór Helgason átti skelfilegan leik í vörn Gróttu þar sem hann er sekur um fyrstu 2 mörk HK. Það fyrra hittir hann ekki boltann í eigin teig og Stefán Ingi skorar eftir það. Í seinna skiptið tekur hann lélega móttöku og Stefán Ingi skorar aftur.

Dómarinn - 6

Mér fannst HK eiga að fá að minnsta kosti eitt víti en það voru 3 mismunandi atvik sem hann hefði mátt dæma víti á Gróttu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.