SKÝRSLAN: Bikarævintýri á Dalvík í ár?
Hvað réði úrslitum?
Frábært 'cupset' hjá Dalvík/Reyni. Þórsararnir nýttu ekki frábæra byrjun og fengu það í bakið.
Bestu leikmenn
1. Jóhann Örn Sigurjónsson
Erfitt að taka einhvern einn út úr þessu liði. Jóhann Örn var frábær á miðjunni og gulltryggði síðan sigurinn í lokinn og þar með sæti í 16 liða úrslitum.
2. Halldór Jóhannesson
Frábær vinnsla á Halldóri í leiknum eins og öllu Dalvíkur liðinu.
Atvikið
Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti en lentu undir eftir hálftímaleik með sjálfsmarki Elmars Þórs. Það var rennblaut tuska í andlitið á þeim og þeir misstu mikið sjálfstraust á því.
Hvað þýða úrslitin?
Er bikarævintýri á Dalvík framundan? Þeir eru að minnsta kosti komnir í 16 liða úrslitin á meðan Þórs liðið fer ekki lengra.
Vondur dagur
Þórsliðið í heild var bara ekki mætt til leiks í dag. Fengu nóg af færum og voru rosalega kærulausir varnarlega!
Dómarinn - 7
Það var alveg nóg að gera hjá honum fyrri hluta fyrri hálfleiks en síðan lítið. Solid sjöa.


