Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 127' Jóhann Árni GunnarssonAdam Ægir Pálsson 35'1 - 11 - 240' Ísak Andri SigurgeirssonDani Hatakka 68'2 - 2Ivan Kaliuzhnyi 89'
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Leik lokið!
Jafntefli er niðurstaðan!
Sennilega sanngjörn niðurstaða þegar öllu er á botninn hvolft.

Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
Keflavík
94. mín
Gult spjald

Dani Hatakka

93. mín
Ekki úr þessu horni í það minnsta.
93. mín
Stjörnumenn fá horn. Er enn timing fyrir hetju?
Keflavík
92. mín
InnHelgi Þór Jónsson
ÚtAdam Ægir Pálsson
92. mín
Leikurinn virkar eins og það sé mögulega sigurmark í honum en á sama tíma væri sanngjörn niðurstaða jafntefli.
91. mín
Fáum +4 á skiltið.
Keflavík
89. mín
Rautt spjald

Ivan Kaliuzhnyi

Seinna gula spjaldið og sendur í sturtu.
88. mín
Við erum að sigla inn í lokamínúturnar því miður og verr því þetta er frábær fótboltaleikur.
Keflavík
84. mín
InnÁsgeir Páll Magnússon
ÚtÍgnacio Heras Anglada
Keflavík
84. mín
InnAdam Árni Róbertsson
ÚtKian Paul James Williams
83. mín
Oliver Haurits með tilraun fyrir Stjörnuna. Leikurinn fer endana á milli og virkilega skemmtilegur leikur.
82. mín
Ivan við það að þræða 3 Keflavíkinga innfyrir en enginn þeirra virtist ætla að láta vaða í boltann.
Joey Gibbs líklegast í rangstöðunni þegar sendinginn kemur en hinir 2 bjuggust líklega við snertingu frá Joey Gibbs.
78. mín
Aukaspyrna frá Ivan fyrir markið sem finnur kollinn á Joey Gibbs en skallinn í þverslánna! Joey Gibbs er sennilega ekki ætlað að skora í dag.
76. mín
Dagur Ingi finnur Adam Ægir sem nær að reka tánna í boltann en Halli ver.
Stjarnan
73. mín
InnOliver Haurits
ÚtEmil Atlason
Stjarnan
73. mín
InnÓskar Örn Hauksson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Gústi Gylfa með leynivopn frá Njarðvík. Sjáum hvað setur.
70. mín
Keflavík ekki lang frá því að komast yfir en Kian Williams er nokkrum cm of lítill!
Keflavík
68. mín
MAAAARK!

Dani Hatakka

KEFLAVÍK JAFNA!

Joey Gibbs í fínu færi en Halli ver boltann en Dani Hatakka sýndist mer það vera sem var fyrstur að átta sig og jafnaði leikinn!
67. mín
Eggert Aron með gott skot sem Sindri Kristinn ver vel og Óli Valur nær frákastinu en færið er þröngt og Sindri Kristinn grípur boltann.
Keflavík
66. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtFrans Elvarsson
65. mín
Óli Valur með frábært skot en markvarslan frá Sindra Kristinn var enn betri!
Stjarnan
62. mín
Gult spjald

Jóhann Árni Gunnarsson

Keflavík
60. mín
Gult spjald

Magnús Þór Magnússon (f)

Stoppar skyndisókn.
Stjarnan
60. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtAdolf Daði Birgisson
Keflavík
59. mín
Gult spjald

Ivan Kaliuzhnyi

Sennilega tuð.
59. mín
Adam Ægir með tilraun en Halli grípur boltann.
57. mín
Ísak Andri enn og aftur í færi en Sindri Kristinn ver vel.
56. mín
Ísak Andri með flottan sprett að marki Keflavíkur en skotið í varnarmann en hann fær hann aftur og á fínustu tilraun sem varnarmenn Keflavíkur ná að bjarga í horn.
55. mín
Flottur hraði og flæði í leiknum. Bæði lið skiptast á að sækja og erfitt að segja til um það hvort liðið sé endilega betri aðilinn.
51. mín
Stjörnumenn keyra upp og ná skoti að marki en Sindri Kristinn vandanum vaxinn.
50. mín
Keflavík með lúmska tilraun en of fastur bolti og Halli kemst í hann.
48. mín
Adam Ægir með bjartsýnistilraun Ivan Kaliuzhnyi til mikillar óánægju.
46. mín
Joey Gibbs sparkar seinni hálfleiknum af stað.
45. mín
Hálfleikur
+2

Vilhjálmur Alvar flautar til loka fyrri hálfleiks í áhugaverðum leik Keflavíkur og Stjörnunnar.
Keflvíkingar fara væntanlega með súrt bragð inn í hálfleikinn.
44. mín
JOEY GIBBS!
Fær boltann mjög nálægt Halla og reynir skotið en Halli ver, Keflvíkingar ná frákastinu og sýndist Sindri Þór Ingimarsson frekar en Halli ná að komast fyrir það og bjarga.
Stjarnan
40. mín
MAAAARK!

Ísak Andri Sigurgeirsson

STJÖRNUMENN KOMAST AFTUR YFIR!

Virkaði eins og misheppnuð sending innfyrir sem varnarmenn Keflavíkur létu fara en Ísak Andri lét reyna á þetta og elti þetta uppi. Sindri Kristinn virtist vera alveg með þetta út við endalínu í markteig en missir boltann frá sér og Ísak Andri nær boltanum af honum og hleypur að auðu markinu og skorar.
Keflavík
35. mín
MAAAARK!

Adam Ægir Pálsson

ADAM ÆGIR PÁLSSON!!

Lætur skot vaða sem fer af varnarmanni og upp í loft en okkar maður lætur það ekki á sig fá og tekur hann að mér sýnist alveg örugglega viðstöðulaust beint og HAMRAR!! honum aftur að marki nálægt vinklinum.

Tvö frábært mörk litið dagsins ljós hér í dag!
33. mín
Kian Williams fellur í teignum og biðlar til Vilhjálms Alvars um víti en Vilhjálmur biður hann bara að rísa á fætur.
29. mín
Skot í stöng!!

Stjörnumenn eru svo sannarlega að taka við sér.
Stjarnan
27. mín
MAAAARK!

Jóhann Árni Gunnarsson

ÞAÐ HELD ÉG NÚ!

Ég hugsa að þetta hafi verið fyrsta skot Stjörnumanna á rammann og það var líka obbosins skot á markið!!
Vildu víti þegar mér sýndist Adolf Daði féll í teignum en boltinn barst til Jóhanns Árna sem skoraði líka þetta markið!
Sindri Kristinn var gjörsamlega sigraður þarna með frábæru skoti!
Stjarnan
26. mín
Gult spjald

Emil Atlason

Missti boltann og elti Adam Ægi uppi og braut.
22. mín
Halli með stórhættulega sendingu sem Adam Ægir kemst inní en Sindri Þór bjargaði Stjörnumönnum fyrir horn.
21. mín
Stjörnumenn liggja heldur aftarlega og hafa reynt að keyra hratt á Keflavík.
19. mín
Dani Hatakka er mættur inná aftur bundinn um höfuðið.
17. mín
Keflvíkingar einum færri þessa stundina.
Dani Hatakka er útaf að fá aðhliningu á höfði, er verið að vefja á honum höfuðið sýnist mér.
15. mín
Nacho Heras með tilraun á markið en Halli var með þetta.
12. mín
Joey Gibbs með tilraun en framhjá markinu.
9. mín
Stjörnumenn að reyna keyra hratt á Keflavíkingana en boltinn of fastur fyrir Eggert Aron sem var þó mættur á ferðina.
5. mín
JOEY GIBBS!!
Er þræddur innfyrir og á ekkert eftir nema að setja hann framhjá Halla en Halli nær að gera sig risastóran og loka á hann. Adam Ægir ekki langt frá því að ná frákastinu og smá barningur um boltann en að lokum endar hann hjá Halla.

Frábærlega gert hjá Halla þarna!
4. mín
ADAM ÆGIR!!
Langur fram á Joey Gibbs sem tekur hann niður og leggur hann út á Adam Ægi sem á fast skot sem Halli ver í slá og yfir!
2. mín
Ísak Andri reynir að læða Eggert Aron í gegn en sendinginn of föst.
1. mín
Það eru Stjörnumenn sem byrja þennan leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Heimamenn í Keflavík gera eina breytingu á liði sínu frá sigurleiknum gegn ÍA. Patrik Johannesen, markahæsti leikmaður Keflavíkur tekur út leikbann og munar um minna fyrir heimamenn þar en Adam Ægir Pálsson kemur í hans stað.

Gestirnir frá Garðabænum gera þá einnig eina breytingu á sínu liði frá sigri sinni gegn ÍBV. Jóhann Árni Gunnarsson kemur inn fyrir Guðmund Baldvin Nökkvason.
Fyrir leik
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Kristán Már Ólafs og Patrik Freyr Guðmundson.
Helgi Mikael Jónasson verður á skiltinu og til taks ef eitthvað kemur upp og þá mun Þórarinn Dúi Gunnarsson hafa eftirlit með gangi mála.


Fyrir leik
Patrik Johannesen markahæsti maður Keflvíkinga á mótinu til þessa verður í leikbanni í kvöld og munar svo sannarlega um það fyrir heimamenn sem þurfa á öllum sínum sóknarkröftum að halda gegn sprækum Garðbæingum.
Fyrir leik
Keflavík sigraði báðar viðreignir liðana á síðasta tímabili þegar þau mættust.
Leikurinn í Keflavík fór 2-0 fyrir heimamönnum þar sem Frans Elvarsson og Kian Williams skoruðu mörk Keflavíkur.
Í Garðabænum sigruðu Keflvíkingar svo 2-3 en þeir komust í 0-3 forystu með tveim mörkum frá Joey Gibbs og svo marki frá Nacho Heras.
Hilmar Árni Halldórsson og Þorsteinn Már Ragnarsson löguðu þó stöðuna fyrir Stjörnumenn.
Fyrir leik
Keflavík

Staða: 7.Sæti
Leikir: 9
Sigrar: 3
Jafntefli: 1
Töp: 5
Mörk skoruð: 14
Mörk fengin á sig: 17
Markatala: -3

Síðustu leikir:

ÍA 0-2 Keflavík
Keflavík 2-1 FH
KR 1-0 Keflavík
Keflavík 3-0 Leiknir R.
Keflavík 3-3 ÍBV

Markahæstir:
Patrik Johannesen - 4 Mörk
Dani Hatakka - 2 Mörk
Adam Árni Róbertsson - 2 Mörk
*Aðrir minna


Fyrir leik
Stjarnan

Staða: 3.sæti
Leikir: 8
Sigrar: 5
Jafntefli: 2
Töp: 1
Mörk skoruð: 17
Mörk fengin á sig: 10
Markatala: +7

Síðustu 5 leikir

Stjarnan 1-0 ÍBV
KA 0-2 Stjarnan
Stjarnan 1-0 Valur
Breiðablik 3-2 Stjarnan
Stjarnan 1-1 Fram

Markahæstir:
Emil Atlason - 7 Mörk
Adolf Daði Birgisson - 2 Mörk
Jóhann Árni Gunnarsson - 2 Mörk
* Aðrir minna


Fyrir leik
Eftir landsleikjahlé er Besta deildin farin að rúlla aftur.
Bæði lið voru á svakalegri siglingu fyrir hlé svo það verður áhugavert að sjá hvernig þau koma stemmd til leiks eftir landsleikjahlé.
Heimamenn í Keflavík söfnuðu 10 stigum í síðustu 5 leikjum og gestirnir í Stjörnunni hafa sömu uppskeru úr síðustu 5 leikjum sínum.
Fyrir leik
Heil og sæl lesendur góðir og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavíkur og Stjörnunnar í Bestu deild karla.


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.