SKÝRSLAN: Valsmenn har Pedersen og lögðu Blika
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið reyndu að sækja sigurmarkið í stöðunni 2-2. Það opnaðist pláss úti vinstra megin hjá Val og Sigurður Egill var réttur maður á réttum stað. Bæði lið spiluðu góðan leik og mátti sjá mikil gæði í snertingum út um allan völl. Leikurinn var skemmtilegur og hafði allt sem toppleikur þarf að hafa.
Bestu leikmenn
1. Aron Jóhannsson
Eitt orð gæði. Svo nokkur orð í viðbót eins og dugnaður og meiri gæði. Sinnti góðri varnarvinnu og er kominn á blað.
2. Arnór Smárason
Löðrandi gæði. Hann og Aron fundu sig vel flæðandi sem fremstu menn. Skilaði líkt og Aron líka góðri varnarvinnu og stoðsendingin... maður lifandi!
Atvikið
Sigurmarkið, áðurséð efni. Sigurður Egill með fyrirgjöf og danska markavélin kemur boltanum í netið. Eins og Valsmenn syngja: 'Vi har Pedersen, vi har Pedersen!'
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsta tap Breiðabliks í sumar og Valur vinnur sinn fyrsta leik eftir fjóra tapleiki í röð. Klisjan: Úrslitin eru góð fyrir deildina.
Vondur dagur
Damir Muminovic átti ekki sinn besta dag, kærulaus þegar Valur kemst í 1-0. Er aftasti varnarmaður og á ekki að bjóða upp á að missa boltann.
Dómarinn - 7
Fínasti leikur hjá Þorvaldi fannst mér. Talsverður hiti, skrítið spjald á Hauk en missti þetta aldrei úr böndunum.




