SKÝRSLAN: Ótrúlegur endurkomusigur Kórdrengja gegn toppliðinu
Hvað réði úrslitum?
Karakter Kórdrengja réði úrslitum í dag, staðan var 2-0 í hálfleik fyrir Selfoss. Í síðari hálfleik kom allt annað lið út og allt í einu var staðan orðin 4-2 fyrir Kórdrengi, ótrúleg endurkoma.
Bestu leikmenn
1. Sverrir Páll Hjaltested
Skoraði 2 mikilvæg mörk til að jafna leikinn og byrja þennan endurkomusigur.
2. Hrovje Tokic
Skoraði örugglega úr tveimur vítum og sótti annað þeirra mjög vel.
Atvikið
Atvikið voru þrjú mörk Kórdrengja á fjórum mínútum, ein ótrúlegasta endurkoma sem ég hef séð.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Selfoss halda sér enn á toppi deildarinnar en Grótta er aðeins 1 stigi frá þeim með leik til góða.
Kórdrengir halda sér enn í 7. sæti en nú eru þeir aðeins 4 stigum frá toppnum.
Vondur dagur
Mér fannst Selfoss brotna niður við fyrsta mark Kórdrengja og vil ég setja vondan dag á vörn Selfyssinga.
Dómarinn - 6
Mér fannst Gunnar Oddur ekki hafa mikil tök á leiknum leikmenn voru mjög ósáttir úr báðum liðum. Gunnar dæmdi 3 víti 2 af þeim voru þó víti að mínu mati.



