Fotbolti.net
Jón Már Ferro
Fylkir
Fylkir
Lengjudeild karla
Würth völlurinn
0 - 1
HK
HK
0 - 155' Örvar Eggertsson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: HK færist nær topnum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var mjög jafn og alveg ljóst að bæði lið ætluðu sér sigur. Í fyrri hálfleik fengu bæði lið færi til að skora en alltaf náði einhver varnarmaður að koma sér fyrir á síðustu stundu. Frábær sókn HK sem Örvar Eggerts batt enda á færði HK sigurinn. Eftir það náðu heimamenn ekki að skapa nógu hættuleg færi.

Bestu leikmenn

1. Bruno Gabriel Soares

Í dag var Bruno kletturinn sem HK fékk hann til að vera í vörninni. Rosalega margar sóknir Fylkis sem enduðu á honum.

2. Leifur Andri Leifsson

Leifur búinn að vera meiddur lengi og spilar eins og kóngur í dag. Líkt og Bruno þá var Leifur mjög góður í vörninni. Þeir tveir og Arnar Freyr markmaður björguðu eiga stóran þátt í að halda hreinu.

Atvikið

Arnþór Ari bjargaði HK frá því að fá mark á sig á 18.mínútu leiksins með að hlaupa á bak við Arnar Frey markmann HK sem reyndi að loka á Mathias Laursen.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að liðin eru jöfn að stigum en HK á leik til góða svo það hlítur að vera enn meira svekkjandi fyrir Fylki að tapa leiknum. Eftir tap Selfoss í kvöld er ljóst að HK getur með þeim leik sem þeir eiga inni jafnað þá að stigum.

Dómarinn - 6

Aðalbjörn sleppti mikið af augljósum brotum. Reyndar gerir það leikinn skemmtilegri. Það er þó sennilega pirrandi fyrir leikmenn beggja liða sem báðu oftar en ekki um aukaspyrnu án þess að fá neitt. Stórt atvik átti sér stað þegar Valgeir Valgeirs braut af sér á gulu þegar það voru um 15 mínútur eftir. Hann átti skilið brottrekstur þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.