SKÝRSLAN: Sóknarbolti í fyrirrúmi suður með sjó
Hvað réði úrslitum?
Frábær skemmtun á HS Orku vellinum í Keflavík. Leiftrandi sóknarbolti og sótt á báða boga. Fengum fullt af flottum færum í kvöld og skemmtilegan fótboltaleik.
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir Pálsson
Gef Adam Ægi þetta en hann átti stórkostlegt mark í dag auk þess sem hann átti stóran þátt í jöfnunarmarki Keflavíkur. Var að toga í strengina þarna fremst og leikstýra sóknarleiknum vel.
2. Ísak Andri Sigurgeirsson
Var alls ekki langt á eftir Adam Ægi í valinu. Var hreint magnaður í liði Stjörnunnar og skapaðist nær alltaf hætta í kringum hann.
Atvikið
Annað mark Stjörnumanna.
Virkaði eins og misheppnuð sending innfyrir sem varnarmenn Keflavíkur létu fara en Ísak Andri lét reyna á þetta og elti þetta uppi. Sindri Kristinn virtist vera alveg með þetta út við endalínu í markteig en missir boltann frá sér og Ísak Andri nær boltanum af honum og hleypur að auðu markinu og skorar.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið skipta með sér stigunum í kvöld.
Keflvíkingar eru búnir með 10 leiki og spila ekki meira í júní svo þeir enda mánuðinn með 11 stig og eru efstir í neðri hluta.
Stjörnumenn eru í 3.sæti stigi á eftir Víkingum en eiga leik til góða til að ná í 2.sætið.
Vondur dagur
Erfitt að gefa einhverjum þennan vafasama heiður en Þórarinn Ingi Valdimarsson byrjaði leikinn afleitlega og fær þennan heiður fyrir það.
Að því sögðu þó þá vann hann sig vel inn í leikinn og þegar uppi var staðið er enginn sem á þannig séð skilið að vera hérna fyrir þessa skemmtun.
Dómarinn - 7
Solid 7.
Sigga Ragga fannst gulu spjöldin á Ivan soft en það er kannski eina sem hægt er að tala um út frá hans frammistöðu hvort það var soft eða ekki. Var ekki að láta veiða sig í neina vítaspyrnudóma og heilt yfir bara vel dæmdur leikur.




