Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Vogaídýfuvöllur
Skýjað og rok. Alveg vel kalt úti.
Þróttur V.
Þróttur V.
0 - 1
Afturelding
Afturelding
0 - 154' Kári Steinn Hlífarsson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Leik lokið!
Afturelding taka 3 stig frá þessum mikla baráttu leik.

Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld, takk fyrir mig!
Þróttur V.
95. mín
Gult spjald

Dagur Guðjónsson

94. mín
Afturelding að vinna aukaspyrnu á þeirra helming. 3 stigin eru örugglega komin!
92. mín
Aukaspyrna fyrir Þrótt á hægri kanti.

Spyrnan fer yfir alla.
Þróttur V.
90. mín
Gult spjald

Oliver James Kelaart Torres

88. mín
Gísli Marteinn liggur eftir með verk í hausnum.

Það er í lagi með kappann.
87. mín
Pablo með hörku skot á Rafal Stefán í markinu. Rafal missir boltann frá sér og Sævar Atli nær öðru skoti sem Rafal ver svo aftur.
Þróttur V.
84. mín
InnOliver James Kelaart Torres
ÚtAndri Már Hermannsson
Afturelding
83. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtJökull Jörvar Þórhallsson
82. mín
Georg Bjarnason með sendingu inn í teig sem Gísli Marteinn sparkar rétt framhjá markinu.
81. mín
Gísli Marteinn dæmdur rangstæður í sókn Aftureldings.
Þróttur V.
80. mín
InnJón Kristinn Ingason
ÚtHaukur Leifur Eiríksson
76. mín
Arnór Úlfur nær að stela boltanum af varnmanni Afturelding og sendir boltann strax á Veseli. Hann hleypur upp með boltann og sendir á Dejan Djuric sem hleypur til vinstri með honum. DJuric kemst svo í frábært færi á móti markvörð en skýtur boltanum yfir markið. ALgjört klúður þarna, hjá bæði vörn Afturelding og Djuric með að klúðra þarna.
Afturelding
72. mín
InnGísli Martin Sigurðsson
ÚtÁsgeir Frank Ásgeirsson
Afturelding
72. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtSigurður Gísli Bond Snorrason
64. mín
Afturelding vildu fá hendi eftir skotið var í varnamann Þrótt inn í teignum. Sá ekki alveg nógu vel sjálfur hvort þetta fór í hendina hanns.
Þróttur V.
59. mín
InnNikola Dejan Djuric
ÚtPablo Gállego Lardiés
Þróttur V.
59. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtAlexander Helgason
59. mín
Rafal Stefán með góða vörslu gegn Aron Elí sem reynir á markið að stöng.
Afturelding
54. mín
MAAAARK!

Kári Steinn Hlífarsson (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Afturelding að komast yfir hér!

Aron Elí með frábæra fyrirgjöf frá vinstri kanti inn í teig til Kári Steins, sem skallar boltann laglega inn í netið!
53. mín
Micheal Kedman með skot langt yfir markið eftir flotta skyndisókn hjá Þrótt V.
Þróttur V.
52. mín
Gult spjald

Haukur Leifur Eiríksson

50. mín
Ég heyrði hér í hálfleik að Ruben Lozano gæti verið með endurkomu í Þrótt V. mögulega í næstu viku. Lozano spilaði með Þrótt V. í fyrra. Hann spilaði 22 leiki og skoraði 14 mörk fyrir liðið. Væri alvöru styrking fyrir þá.
47. mín
Siggi Bond slæmur í fætinum eftir að Andri Már brýtur á hann.
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný!
45. mín
Það er farið vel með mann hér i Þrótt V. með geggjuðum borgara, sem ég mæli vel með!
Borgarinn er grillaður af sterkustu konu Íslands, Ellenu Lind Ísaksdóttur.
45. mín
Hálfleikur
Spennandi fyrri hálfleikur að enda hér, þrátt fyrir að það sé ennþá 0-0. Afturelding hafa átt meiri boltann og fleiri færi, en samt mjög jafnur leikur.
43. mín
Andri már með flotta fyrirgjöf sem fer inn í teig Aftureldings. Pablo Gállego nær glæsilegum skalla beint á markið, en Esteve Pena í markinu nær rétt svo að fara með höndina sína fyrir boltanum. Esteve með drauma vörslu í annað skiptið í þessum leik.
40. mín
Siggi Bond kemst framfyrir vörn Þrótts og nær næstum boltanum eftir sendingu á hann. Arnór Gauti heldur í treyjuna hanns Sigga og dregur hann tilbaka. Egill dómari dæmir ekki á þetta, en gefur Sigga gult fyrir mótmæli.
Afturelding
40. mín
Gult spjald

Sigurður Gísli Bond Snorrason

Siggi Bond fær gult fyrir réttlæta mótmæli í dómaranum, að mínu mati.
39. mín
Dagur Guðjóns dæmdur brotlegur á Kára Stein
36. mín
Afturelding með flott liðsspil upp völlinn og eigna sér hornspyrnu í lokinn.
34. mín
Sigurður Bond er með flott spil á vinstri og sendir boltann á Pablo Vazquez sem er með skot fyrir utan teig, en fer yfir markið.
32. mín
Afturelding vinnur sér hornsyrnu
24. mín
Þróttur V. vinna hornspyrnu.

Boltinn kýldur í loftinu af Esteve Pena.
13. mín
Afturelding eiga aukaspyrnu rétt fyri utan teig.

Rafal Stefán ver spyrnuna.
Þróttur V.
13. mín
Gult spjald

Alexander Helgason

Fyrir hátt spark
12. mín
Afturelding eru að fá sínu þriðu hornspyrnu í röð.

Þessi spyrna fór yfir alla í teignum.
11. mín
Afturelding vinnur hornspyrnu.

Boltinn fer í leikmann Þrótt V. og framhjá marki. Önnur hornspyrna fyrir Afturelding.
11. mín
Alexander Helgason skýtur boltann í Ásgeir Frank sem stendur beint við hliðinni á honum. Ásgeir þarf smá aðhlýðningu.
8. mín
Jökull Jörvar á skot framhjá marki Þrótt V.
5. mín
Haukur Leifur nær sendingu á Pablo sem stendur fyrir framan markið og skýtur boltann niður í hægra hornið. Esteve Pena ver þetta færi mjög vel og boltinn endar svo framhjá markinu og í hornspyrnu fyrir Þrótt V.
1. mín
Þróttur V. byrja hér leikinn. Mikilvægur leikur hér á ferð!
Fyrir leik
Leikmenn eru að labba hér inn á velli!
Fyrir leik
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð

Brynjar Þór er að stjórna sinn fyrsta leik fyrir Þrótt V. og gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu eftir 0-4 tap gegn Selfoss. Arnór Gauti, Alexander Helgason og Haukur Leifur koma inn í byrjunarliðið. Freyr Hrafn, Oliver Kelaart og Shkelzen Veseli eru allir hentir á bekkinn.

Magnús Már gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliði sýnu eftir 2-1 tap gegn KV, sem var á botni deildarinnar fyrir þann tap leik. Hrafn Guðmundsson kemur inn í byrjunarliðið eftir að Elmar Kári Cogic fékk dæmt á sig rautt spjald í seinasta leik.
Fyrir leik
Þróttarar eru enn án þjálfara eftir að Eiði Ben Eiríkssyni var sagt upp á dögunum. Brynjar Þór Gestsson og Andy Pew stýra liðinu á meðan leitað er að endanlegum þjálfara.
Brynjar Þór Gestsson.
Fyrir leik
Heimamenn í Þrótti hafa ekki spilað leik síðan 27. maí þegar þeir töpuðu 4-0 úti gegn Selfossi en síðan var tveimur leikjum frestað vegna landsliðsverkefna tveggja leikmanna þeirra. Liðið er í botnsæti deildarinnar, hefur aðeins fengið eitt stig úr fyrstu fjórum leikjunum sem kio í jafntefli gegn Vestra. Þróttarar unnu þó 1-0 sigur á FH í æfingaleik fyrir viku síðan, Unnar Ari Hansson skoraði markið.

Gestirnir í Aftureldingu eru í 10. sæti með 3 stig en hafa leikið tveimur leikjum meira en Þróttarar. Þeir töpuðu 2 - 1 úti gegn KV fyrir viku síðan.
Fyrir leik
Egill Arnar Sigurþórsson dæmir leikinn í dag og er með þá Tomasz Piotr Zietal og Rögnvald Þ Höskuldsson sér til aðstoðar á línunum. Frosti Viðar Gunnarsson mætir svo sem eftirlitsmaður KSÍ og fylgist með umgjörð og störfum dómara.
Egill Arnar dæmir í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar Vogum og Aftureldingar í Lengjudeild karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Vogaídýfuvellinum í Vogum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.