Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Skýjað og smá vindur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 2
ÍA
ÍA
Logi Tómasson 13'1 - 0Viktor Örlygur Andrason 20'2 - 02 - 167' Ingi Þór SigurðssonErlingur Agnarsson 71'3 - 13 - 287' Ingi Þór Sigurðsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 521

SKÝRSLAN: Víkingar með fimmta sigurinn í röð

Hvað réði úrslitum?

Eins og Arnar Gunnlaugs kom inná eftir leik þá var það eiginlega góð byrjun sem kláraði þennan leik fyrir Víkinga.
Skagamenn byrjuðu hægt og gerðu lítið framan af en komu beittari út í síðari hálfleikinn með ferskum skiptingum en Víkingar gerðu nóg til þess að klára leikinn og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Logi Tómasson

Var frábær í liði Víkinga. Skoraði frábært mark og lagði upp annað og leysti stöðuna á miðjunni vel.

2. Ingi Þór Sigurðsson

Frábær innkoma hjá þessum unga leikmanni. Skoraði 2 mörk og hélt lífi í þessu hjá Skagamönnum.

Atvikið

Stórkostlegt annað mark frá Inga Þór Sigurðssyni sem kom út frá nánast engu þegar hann hamraði boltann upp í hornið fjær og hleypti smá spennu í lokamínúturnar.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar vinna sinn fimmta sigur í röð í deildinni og saxa á forskot Blika niður í sex stig og sitja þægilega í 2.sæti deildarinnar með fjögra stiga forskot á KA í 3.sæti.
Skagamenn leita enn eftir fyrsta sigri sínum frá því í annari umferð gegn einmitt Víkingum og sitja í 10.sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Kristian Ladewig Lindberg reyndi og reyndi en gekk lítið. Skoraði mark sem var dæmt réttilega rangstætt með illa tímasettu hlaupi og var í smá brasi.

Dómarinn - 7

Allt í lagi leikur hjá dómarateymini. Reyndi ekkert sérstaklega mikið á teymið þannig séð og þeir komust vel frá sínu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.