Fotbolti.net
Besta deildin
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
Hlýtt, en helvítis rok
KA
KA
4 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 16' Jose Enrique Seoane VergaraÍvar Örn Árnason 13'1 - 1Nökkvi Þeyr Þórisson 18'2 - 12 - 222' Jose Enrique Seoane Vergara (víti)2 - 345' Halldór Jón Sigurður ÞórðarsonDaníel Hafsteinsson 56'3 - 3Elfar Árni Aðalsteinsson 76'4 - 3
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: KA vann skothríðina á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

KA menn skoruðu fjórum sinnum, en Eyjamenn "bara" þrisvar. Ég held að það sé einfaldasta skýringin. KA menn voru beittari eftir að þeir jöfnuðu leikinn 3-3 og skoruðu verðskuldað þegar að Elfar Árni batt enda á frábæra sókn heimamanna. Grátlegt fyrir Eyjamenn að ná ekki allavega stigi þar sem að heilt yfir var jafntefli líklega sanngjarnasta niðurstaðan.

Bestu leikmenn

1. Sito (ÍBV)

Það var áfall fyrir Eyjamenn að missa Sito af velli. Hann hafði verið þungamiðjan í þeirra hættulegustu aðgerðum og skoraði tvívegis. Sýndist hann togna aftan í læri og það væri mikill skellur fyrir Eyjamenn að missa hann í einhverjar vikur.

2. Sveinn Margeir Hauksson (KA)

Gríðarlega vinnusamur í dag og öflugur á boltanum. Hann er með frábæran hægri fót og það kæmi mér á óvart ef að hann næði ekki að leggja upp 1-2 mörk til viðbótar í sumar.

Atvikið

Sigurmarkið. Stórglæsilegt uppspil og afgreiðsla Elfars Árna var afar hugguleg.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn skjóta sér upp í 3. sætið, allavega um stundarsakir. Þeir eru nú með 21 stig eftir 12 umferðir, fjórum stigum á eftir Víkingum en talsvert lengra er í topplið Blika. ÍBV leitar enn að fyrsta sigrinum í deild og sitja á botni deildarinnar með 5 stig.

Vondur dagur

Varnarleikur vann ekki stórsigur í dag. Um það þarf í raun ekki að orðlengja.

Dómarinn - 9

Fannst Þorvaldur komast afar vel frá sínu verkefni í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.