Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Íslenskt sumarveður, skýjað, væg rigning og hvasst.
Fjölnir
Fjölnir
2 - 1
Afturelding
Afturelding
Hans Viktor Guðmundsson 38'1 - 0Lúkas Logi Heimisson (víti) 55'2 - 02 - 163' Andi Hoti90' Gunnar Bergmann Sigmarsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Áhorfendur: 207

SKÝRSLAN: Fjölnir sigraði Aftureldingu í fjörugum leik

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var mjög jafn en það sem réði úrslitum var fyrsta mark leiksins sem Hans Viktor skoraði.

Bestu leikmenn

1. Hans Viktor Guðmundsson

Átti góðan leik í vörn Fjölnismanna og skoraði úr kröftugum skalla.

2. Lúkas Logi Heimisson

Átti góðan leik í dag, skemmtilegur leikmaður og skoraði úr frábæru víti.

Atvikið

Þegar Jökull Jörvar rennir sér niður að óþörfum í sínum eigin teig og tekur Orra Þórhals niður og gefur þar að leiðandi víti sem Fjölnir skorar úr og kemst í 2-0.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Fjölnir er komið upp í 6. sæti deildarinnar en Afturelding datt niður í 9. sæti.

Vondur dagur

Gunnar Bergmann Sigmarsson fékk réttilega dæmt á sig rautt spjald eftir að hafa tekið sóknarmann Fjölnis niður sem aftasti maður. Jökull Jörvar gaf líka víti, ekki þeirra dagur í dag.

Dómarinn - 8

Gunnar Oddur dæmdi víti og rautt spjald réttilega í þessum leik og var yfir heildina litið flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.