Fotbolti.net
Gunnar Bjartur Huginsson
Lengjudeild karla
Framvöllur
13 gráður, skýjað og vindsamt
Kórdrengir
Kórdrengir
1 - 0
Þróttur V.
Þróttur V.
Guðmann Þórisson 65'1 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Kórdrengir með góðan 1-0 sigur á Þrótti Vogum

Hvað réði úrslitum?

Grimmd og vinnusemi. Ásamt því sóttu þeir mörg föst leikatriði og sköpuðu sér færi upp úr þeim. Til að mynda kemur mark Guðmanns upp úr horni.

Bestu leikmenn

1. Guðmann Þórisson

Lítið um þetta val að segja. Hélt hreinu og skoraði.

2. Daníel Gylfason

Kraftmikill á kantinum og skapaði hættuleg færi.

Atvikið

Verður að vera þegar Guðmann skoraði. Sló gestina alveg út af laginu, þar sem að spilamennska þeirra var að batna.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Kórdrengir færast úr 9. sætinu yfir í það sjöunda. Þróttarar sitja enn í neðsta sæti deildarinnar með tvö stig.

Vondur dagur

Erfitt að skrifa þetta á einhvern, en ég hef ákveðið að velja sköpunarkraft liðsins. Þeir komust á fína staði og náðu oft yfirtölu í skyndisóknum sínum, en náðu ekki að setja saman dauðafæri.

Dómarinn - 6

Hann var fínn. Sleppti nokkrum augljósum dómum og var ekki mikið að refsa fyrir leiktöf.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.