Fotbolti.net
Jón Már Ferro
Lengjudeild karla
Framvöllur
Kórdrengir
Kórdrengir
1 - 3
HK
HK
0 - 14' Bruno Gabriel Soares0 - 251' Hassan JallohLoic Cédric Mbang Ondo 70'1 - 21 - 372' Hassan Jalloh
Dómari: Rúni Olsen (Færeyjar)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: HK færist nær Bestu deildinni

Hvað réði úrslitum?

Léleg dekkning Kórdrengja í mörkunum skildi á milli í dag. Fyrir utan það var varnarleikur Kórdrengja þéttur og þeir gáfu fá færi á sér. Gestirnir hefðu eflaust viljað nýta yfirburði sína úti á vellinum betur.

Bestu leikmenn

1. Hassan Jalloh

Skoraði tvö mörk þrátt fyrir að gestirnir hafi ekki náð að opna Kórdrengi mikið.

2. Arnar Freyr Ólafsson

Arnar var öruggur í sínum aðgerðum í dag.

Atvikið

Kórdrengir urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Bruno skoraði eftir aðeins 4.mínútur.

Hvað þýða úrslitin?

HK færist nær Bestu deildinni með sigrinum í dag. Kórdrengir voru hvorki að fara berjast á toppnum né í hættu á að falla svo staða þeirra er ekki mikið breytt eftir leikinn.

Vondur dagur

Rúni Olsen virtist ekki vera alveg tilbúinn í verkefnið í dag. Leikmenn beggja liða og þjálfarar voru ósáttir frá upphafi til enda.

Dómarinn - 4

Rúni Olsen dæmdi leikinn illa. Margar skrýtnar ákvarðanir bæði varðandi brot og svo hefði hann getað spjaldað mikið oftar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.