SKÝRSLAN: Steindautt jafntefli á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
Aðeins skárri fyrri hálfleikur en liðunum gekk ansi illa að skapa sér færi. Þórsarar reyndu mikið léleg skot af löngu færi í síðari hálfleik. Bjarni Guðjón komst í gott færi í fyrri hálfleik sem hann hefði átt að gera betur í. Afturelding hélt betur í boltann í síðari hálfleik en átti erfitt með að koma sér í upplagt færi mest allan leikinn.
Bestu leikmenn
1. Aron Birkir Stefánsson
Boltinn var mikið í teignum hjá Þór og Aron vel vakandi, lokaði vel á eitt færi sem Afturelding komst í.
2. Esteve Pena Albons
Öruggur milli stangana hjá Aftureldingu, vel vakandi þegar Bjarni Guðjón slapp í gegn og kom í veg fyrir að Aftuelding lenti marki undir.
Atvikið
Dauðafærið hjá Bjarna Guðjóni. Mörk breyta leikjum og þarna hefði hann átt að gera betur.
Hvað þýða úrslitin?
Óskaplega lítið. Liðin eru bara að reyna safna sem flestum stigum það sem eftir er og enda eins ofarlega og hægt er. Bæði lið áfram á sínum stað, Afturelding í 5. sæti og Þór í 10. sæti.
Vondur dagur
Bæði lið áttu vondan dag sóknarlega. Þórsarar byggðu þetta svolítið upp á skyndi sóknum sem gekk illa. Varnarlína Þórs lokaði á sóknarlínu Aftureldingar sem náðu ekki að skapa sér mikið.
Dómarinn - 6
Leyfði leiknum ekkert að fljóta. Dæmdi hátt í 40 aukaspyrnur, oft sem hann hefði mátt beita hagnaði. Leikmenn Aftureldingar voru sérstaklega pirraðir á þessu og fengu 2-3 gul spjöld fyrir tuð.


