SKÝRSLAN: Fylkir hefur tryggt sér sæti í deild þeirra bestu
Hvað réði úrslitum?
Fylkismenn nýttu sín færi í fyrri hálfleik og gerðu útum leikinn með þriðja markinu.
Bestu leikmenn
1. Mathias Laursen
Það fór ekki mikið fyrir honum í leiknum sjálfum en þegar þú skorar þrennu þá hlýtur þú að vera hér.
2. Ólafur Kristófer Helgason
Varði oft á tíðum frábærlega í markinu. Hafþór Gunnar, Benedikt Daríus og Birkir Eyþórsson eiga einnig skilið að vera hér, þeir voru gríðarlega skeinuhættir í leiknum og reyndust Gróttumönnum erfiðir viðureignar.
Atvikið
Í stöðunni 2-0 fékk Luke Rae algjört dauðafæri eftir varnarmistök hjá Arnóri Gauta. Luke Rae nýtti hinsvegar ekki færið og stuttu síðar komst Fylkir í 3-0 sem kláraði leikinn mætti segja.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir hefur tryggt sér sæti í Bestu-deildinni á næsta ári og á sama tíma eru vonir Gróttu um sæti í deild þeirra bestu eru gott sem búnar þar sem HK vann sinn leik á sama tíma og munar nú níu stigum á liðunum þegar þrjár umferðir eru eftir.
Vondur dagur
Jón Ívan Rivine hefur sennilega átt marga töluvert betri daga en í dag. Það er alls ekki hægt að skrifa einhver mörk Fylkis alfarið á hann en hlutverk hans er hinsvegar að verja mark Gróttu og það gekk ekki alveg sem skyldi. Varnarleikur liðsins í heild sinni var síðan ekki að hjálpa til.
Dómarinn - 8
Finninn, Juho Nieminen fór létt með þetta verkefni og getur verið stoltur af sinni frammistöðu. Erfiðleikastigið var ekki hátt svosem.



