Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Vogaídýfuvöllur
Sól og blýða, 16 gráður úti.
Þróttur V.
Þróttur V.
1 - 2
KV
KV
0 - 13' Askur JóhannssonArnór Gauti Úlfarsson 35'1 - 11 - 262' Grímur Ingi Jakobsson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Barátta á milli liðanna sem fallin eru úr deildinni

Hvað réði úrslitum?

KV byrjuðu leikinn betur og náðu forystu mjög snemma í leiknum. En þrátt fyrir mark undir þá náðu Þróttarar góðum stjórn á leiknum seinni hluta fyrsta hálfleiks og nær Arnór að jafna metið Seinni hálfleikur var afar jafn og áttu bæði liðin flottan kafla, en KV náði að klára sitt færi og sigruðu þennan leik.

Bestu leikmenn

1. Grímur Ingi Jakobsson

Fyrirliði KV var mjög flottur í þessum leik. Stjórnaði miðjuna hjá KV vel og skoraði glæsilegt sigur mark.

2. James William Dale

Þrátt fyrir tap þá fannst mér James William flottur í miðjunni hjá Þrótt. Stjórnaði leiknum vel fyrir Þrótt og komst mikið fyrir boltann fyrir skyndisóknum og í sendingum.

Atvikið

Spennandi varð það þegar Rúrik fær sitt annað gula spjald og Þróttarar, sem eru að sækja jöfnunarmark, eru einum fleiri í 8 mínútum.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur V. er þegar fallið úr Lengjudeildinni og liggja í neðsta sæti með aðeins 6 stig eftir 19 leiki. KV halda áfram þeirra ólíklegan draum að geta haldið sér uppi. Þeir liggja í næsta neðsta sæti með 14 stig eftir 19 leiki.

Vondur dagur

Vörn Þróttara var sofandi í fyrsta markinu. KV menn komust gegnum vörn þeirr allt of léttilega og náðu forystu mjög snemma í leiknum. Hans Mpongo átti ekki góðan leik, hann var oft allt of seinn með hlaup sín innfyrir varnamenn KV og var ekki nógu duglegur að pressa á leikmenn, virtist oft vera bara dólandi þegar hann gæti hafa veriðað pressa á vörn KV manna. Svo var það heimskt hjá Rúrik að fá á sig annað gula spjald sem hann átti alveg skilið að fá. Setti KV undir mikla pressu í loka mínútur leiksins.

Dómarinn - 8

Mjög fínn dæmdur leikur hjá Elías Inga og teyminu hanns. Fannst aðallega Elías vera oft fyrir leikmönnum. Gæti hafa gefið Nikola rautt fyrir að fara með fótinn hátt upp í loftið og í haus leikamanns KV, smá eins og Kian gegn FH. En annað gula spjaldið á Rúrik var hárrétt ákvörðun.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.