Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Bongó blíða!
Fjölnir
Fjölnir
4 - 1
Selfoss
Selfoss
Júlíus Mar Júlíusson 40'1 - 01 - 145' Adam Örn Sveinbjörnsson Guðmundur Karl Guðmundsson 62'2 - 1Hákon Ingi Jónsson 66'3 - 1Viktor Andri Hafþórsson 90'4 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Fjölnir skoraði 4 gegn Selfoss

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var mjög jafn milli liðanna í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik var Fjölnir mun sterkari aðilinn og tók völdin á leiknum. Í síðari hálfleik þorðu Fjölnismenn að sækja mun meira og nýttu færin betur en í fyrri hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Lúkas Logi Heimisson

Lúkas var mjög líflegur í dag, var með 2 stoðsendingar og átti mörg hörkuskot.

2. Júlíus Mar Júlíusson

Júlíus kom inná fyrir bróður sinn og skoraði fyrsta mark leiksins. Hann var mjög góður á miðjunni og átti góðan dag.

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Alexander Vokes var mjög áhugavert.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Fjölnir kom sér upp fyrir Gróttu og í 3. sæti deildarinnar. Litlar líkur eru á því að þeir nái að koma sér upp í 2. sætið en HK þarf aðeins að vinna einn leik til að tryggja sér annað sætið. Selfoss fer niður í 7. sæti deildarinnar við úrslit dagsins og verður að segjast að þetta tímabil er búið að vera vonbrigði fyrir Selfyssinga.

Vondur dagur

Alexander Clive Vokes kom inn á á 72. mínútu leiksins. Hann fékk gult spjald á 75. mínútu og fékk síðan að líta seinna gula spjaldið sitt á 88. mínútu og rekinn af velli fyrir að tosa í Killian Colombie, mjög heimskulegt brot hjá Alexander.

Dómarinn - 8

Twana Khalid Ahmed var að dæma sinn fyrsta leik í Lengjudeild karla og stóð sig með stakri prýði, ekkert hægt að setja út á hann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.