SKÝRSLAN: Afar mikilvægur heimasigur Eyjamanna
Hvað réði úrslitum?
ÍBV kláraði sín færi í erfiðum aðstæðum þar sem leikur hefði getað farið hvernig sem er.
Bestu leikmenn
1. Oliver Heiðarsson
Frábært mark og stoðsending. Mjög duglegur eins og alltaf og gaman að sjá hann svona virkann og öflugann eins í dag.
2. Elvis Bwomono
Stórgóður í stöðu hægri bakvarðar varnarlega og á svo þátt í báðum mörkum ÍBV.
Atvikið
Rauða spjaldið á Richard King sem hafði samt engin áhrif þannig séð. Klaufalegt að fá á sig tvö gul spjöld.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV spyrnir sér upp í 8. sæti eins og er. KA fer neðar í töfluna og líklega áhyggjuefni með stöðu þeirra í dag miðað við væntingar.
Vondur dagur
Richard King fær 2 gul og þar af leiðandi rautt spjald. Hann verður því í leikbanni í næsta leik.
Dómarinn - 8
Afar vel dæmdur leikur. Erfiður leikur vegna aðstæðna en var með flest atriði á hreinu.



