SKÝRSLAN: Vestri með mikilvægan sigur á Leikni R fyrir vestan
Hvað réði úrslitum?
Vestri hreinlega vildu þetta meira. Seinni hálfleikurinn hjá Leikni var slakur eins og Vigfús nefnir í viðtali, þeir lágu of aftarlega og héldu ekki bolta. Markið hjá Tufa var vel tekið og á endanum það sem skilur liðin að. Vestri voru betri aðilinn í leiknum í heildina og uppskáru eitt mark, hefðu sennilega viljað fleiri en þú þarft víst bara að skora fleiri en andstæðingurinn til að vinna leiki.
Bestu leikmenn
1. Silas Songani
Var virkilega líflegur í þessum leik. Líklega hraðasti maðurinn í deildinni og ógnar alltaf þegar hann leggur af stað með boltann. Klúðraði vissulega algjörlega opnu færi einn á móti markmanni en var hættulegasti maður vallarins í dag og fær því kallið í dag.
2. Vladimir Tufegdzic
Sóknarmenn eru dæmdir út frá mörkum sagði einhver og hann skilaði sigurmarkinu í dag. Virkilega góður skalli sem á endanum skildi liðin að.
Atvikið
Vítaspyrnuklúðrið. Leiknismenn fengu fá færi í leiknum en hefðu þarna getað gert þetta erfitt fyrir heimamenn. Sköpuðu sér nákvæmlega ekki neitt í seinni hálfleik og því svíður þetta gestina ennþá meira eftir á litið.
Hvað þýða úrslitin?
Löng keyrsla heim og sjálfsskoðun hjá Leikni. Eru sigurlausir í síðustu 7 leikjum, eiga að vera með betra lið en þetta. Voru slakir í dag. Vörðust á tímum vel og hleyptu Vestra ekki í mörg færi en þú verður að reyna að vinna leikina til að uppskera eitthvað og sá vilji sást ekki í seinni hálfleik í kvöld. Vestri eru komnir með 9 stig og lyfta sér af botninum í bili. Eiga leik á móti Ægi heima um helgina og eiga að vinna hann og þá fer þetta líta betur út hjá lærisveinum Davíðs Smára.
Vondur dagur
Daníel Finns bókaði sig í þennan dálk á svipstundu í fyrri hálfleik. Arfaslakt víti hans er varið og nælir sér svo í spjald í kjölfarið. Í svona mikilvægum leik á erfiðum útivelli er ekki í boði að taka lélegt víti.
Dómarinn - 4
Aðalbjörn var slakur í dag. Línan hans var óskýr, veifaði spjöldum fyrir litlar sakir og gleypti flautuna á móti. Hann var jafnan vel staðsettur en virtist bara sjá leikinn allt öðruvísi en aðrir. Leikmenn beggja liða voru orðnir verulega ringlaðir á honum.


