Fotbolti.net
@ivangudjonÍvan Guðjón Baldursson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Himinn þakinn skýjum og mikill vindur
Grótta
Grótta
1 - 0
Selfoss
Selfoss
Adrian Sanchez (sjm) 34'1 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Bitlausir Selfyssingar töpuðu á Seltjarnarnesi

Hvað réði úrslitum?

Óheppilegt sjálfsmark hjá Adrian Sanchez réði úrslitum. Gróttumenn voru þó sterkari og verðskulduðu sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Aron Bjarki Jósepsson

Steig varla feilskref í leiknum. Frábær frammistaða hjá Aroni sem var duglegur að fara upp úr varnarlínunni til að spila sem djúpur miðjumaður með boltann og í hápressu án boltans.

2. Arnar Þór Helgason

Var frábær í vörn Gróttu þar sem sóknarleikmenn Selfoss sáu vart til sólar. Átti stóran þátt í eina marki leiksins og var óheppinn að skora það ekki sjálfur. --- Grímur Ingi Jakobsson var meðal líflegustu leikmanna Gróttu og þá áttu Gabríel Hrannar Eyjólfsson og Tareq Shihab einnig flottan leik.

Atvikið

Opnunarmarkið. Rangstöðulykt í aðdragandanum, þar sem leikmaður Gróttu virtist vera innfyrir varnarlínuna þegar spyrnan fór af stað, til að hindra hlaup varnarmanna Selfoss.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fer upp í 13 stig og getur reynt að blanda sér í toppbaráttuna með sigrum í næstu umferðum. Selfoss er áfram með 10 stig, fimm stigum fyrir ofan Leikni R. í fallsæti sem á leik til góða.

Vondur dagur

Þór Llorens Þórðarson fékk tvö gul spjöld og hjálpaði það ekki Selfyssingum á lokakaflanum. Fyrra gula spjaldið varð að aukaspyrnu sem leiddi eina mark leiksins af sér. Þór verður í leikbanni í næsta leik, sem er afar mikilvægur heimaleikur gegn Leikni R.

Dómarinn - 7

Vel dæmt heilt yfir. Tvö erfið vafaatriði sem er hægt að deila um, en engin auðsjáanleg mistök.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.