SKÝRSLAN: Fimm marka seinni hálfleikur
Hvað réði úrslitum?
Eftir þannig séð rólegan fyrri hálfleik, en samt ekki þar sem hitinn inni á vellinum var mikill og bæði lið vildu fá víti, þá var mun meira um færi í seinni hálfleik enda buðu liðin upp á fimm mörk. FH voru sterkari í upphafi leiks og stærsta hluta fyrri hálfleik og mega vera svekktar að hafa ekki náð að skapa sér betri færi og skorað mark í þeim fyrri. Í seinni hálfleik mætti Valsliðið sterkara til leiks og voru beittari í sóknaraðgerðum sínum og í raun kláruðu þennan leik á um það bil korteri þegar þær komu sér í 3-0. FH liðið sýndi þó karakter og reyndi hvað þær gátu að koma til baka og voru þegar uppi er staðið ekki langt frá því.
Bestu leikmenn
1. Bryndís Arna Níelsdóttir
Það er ekki annað hægt en að velja Bryndísi mann leikinn. Hún á stóran þátt í öllum mörkum Vals, leggur upp það fyrsta og skorar seinni tvö. Kláraði færin vel og átti fullkomna sendingu á Ísabellu í fyrsta markinu. Bætti forskotið sem markahæsti leikmaður deildarinnar.
2. Lára Kristín Pedersen
Stendur alltaf fyrir sínu á miðjunni hjá Val og bindur liðið saman. Fer ekki alltaf mest fyrir henni en hún var að skila góðri vinnu allan leikinn og á góða stoðsendingu á Bryndísi í þriðja markinu sem kom Val í góða stöðu í leiknum.
Atvikið
Það var lítið sem benti til þess að FH ætti einhvern möguleika á að fá eitthvað út úr þessum leik þegar þær voru lentar 3-0 undir á 82. mínútu. Þær voru þó ekki á því að gefast upp og skoruðu tvö mörk á fjórum mínútum undir lok venjulegs leiktíma og maður átti alveg eins von á að jöfnunarmarkið kæmi í uppbótartímanum með mómentið með sér.
Hvað þýða úrslitin?
Valur fer í 23 stig líkt og Breiðablik en Blikar halda toppsætinu á markatölu. FH er áfram með 17 stig og fer niður í 5. sæti deildarinnar þar sem Þór/KA vann í kvöld.
Vondur dagur
Varnarlína FH átti slæman dag í korter þegar þær fengu á sig þrjú mörk. Fyrsta markið kom og þetta hrundi bara í kjölfarið þangað til þriðja var komið. Voru flottar þess utan og héldu sóknarmönnum Vals í skefjum stærsta hluta leiksins.
Dómarinn - 6.5
Heilt yfir bara fínt en set spurningarmerki við að dæma ekki víti í fyrri hálfleik þegar Ásdís er sloppin í gegn og Aldís virðist toga í hana.



