SKÝRSLAN: Vindur í Vestmannaeyjum
Hvað réði úrslitum?
Gæðin í Stjörnuliðinu eru einfaldlega meiri og að mínu mati virkilega furðulegt hvernig lið með öll þessi gæði geta verið svona neðarlega í töflunni.
Bestu leikmenn
1. Sædís Rún Heiðarsdóttir
Ein stoðsending og góð frammistaða. Erfitt að velja besta leikmanninn í þessu roki.
2. Arna Dís Arnþórsdóttir
Sama má segja um Örnu. Steig upp í fjarveru Gunnhildar og Önnu Maríu og átti góða stoðsendingu.
Atvikið
Mark ÍBV var ansi skrýtið og kom með smá spennu í leikinn. Auður Scheving óheppinn með skopp á boltanum og á svo skot í Holly og inn.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan nálgast toppbaráttuna, þar sem þær stefna á að vera í lok tímabilsins. ÍBV eru enþá í fallsæti en ekki langt í næstu lið.
Vondur dagur
Ég er bara farinn að vorkenna leikmönnum ÍBV að spila alla sína heimaleiki í þvílíkum vind. Það er ekkert hægt að spila almennilegan fótbolta í þessu veðri og ég get ímyndað mér að leikmenn séu orðnir þreyttir á þessu.
Dómarinn - 8
Bara fínn leikur hjá Óla og hans teymi. Vel gert að sjá að boltinn hafi verið inni í marki ÍBV.



