Fotbolti.net
@thorsteinnhaukuÞorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Afturelding
Afturelding
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
1 - 2
Grindavík
Grindavík
0 - 137' Símon Logi ThasaphongAron Elí Sævarsson (víti) 49'1 - 11 - 259' Óskar Örn Hauksson (víti)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Langþráður Grindavíkursigur kom gegn toppliðinu

Hvað réði úrslitum?

Grindvíkingar voru meira "clinical". Afturelding meira með boltann en það vantaði bit í sóknarleikinn.

Bestu leikmenn

1. Marko Vardic

Rosalega góður í fótbolta þessi gæji. Góð stoðsending í fyrsta markinu

2. Símon Logi Thasaphong

Gerði vel í markinu sínu og var duglegur

Atvikið

Seinna mark Grindavíkur sem kom úr víti. Eftir það var einhvernveginn allur vindur úr heimamönnum

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík vinnur langþráðan sigur eftir 7 leiki án sigur. Afturelding hefur hinsvegar náð í 1 stig af seinustu 9 mögulegum. Mosfellingar sitja þó ennþá á toppnum

Vondur dagur

Langar pínu að setja þetta á KSÍ þar sem leikskýrslukerfið hjá þeim bauð upp á allskonar vandræði í kvöld. Engin skráður með númer og vitleysur í byrjunarliði. Set einnig smá mínus á sóknarleik Mosfellinga. Þeir voru bitlausir í dag

Dómarinn - 6,5

Gunnar Freyr Róbertsson var ekkert frábær en ekki slakur heldur. Óviss með nokkrar ákvarðanir en heilt yfir allt í lagi frammistaða
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.