SKÝRSLAN: KA menn nokkrum númerum of litlir fyrir Club Brugge
Hvað réði úrslitum?
Club Brugge hafði bara alltof mikil gæði fyrir þetta KA lið. Það var þó aðallega þessar síðustu 5 mínúturnar í fyrri hálfleik sem gerði út um þennan leik og viðureignina í heild sinni. KA menn vörðust hörku vel í þessum leik og náðu að skapa sér eitt og eitt hálf færi.
Bestu leikmenn
1. Dusan Brkovic
Það nennir enginn að lesa um hvaða leikmenn Club Brugge voru góðir í þessum leik þannig ég ætla bara að halda mig við KA mennina. Dusan var kóngur í ríki sínu sérstaklega fyrstu 40 mínúturnar í leiknum og hann skallaði ófáa bolta úr teignum. Mögulega hefði hann getað gert betur í nokkrum af mörkunum en það er búið og gleymt.
2. Jakob Snær Árnason
Jakob kom inn á með eitt í huga. Að tuddast og stríða leikmönnum Club Brugge. Það tókst mjög vel og hann náði sér í eina stoðsendingu og hefði verið með tvær ef Willard hefði ekki verið rangstæður.
Atvikið
Mark númer 2 hjá Club Brugge kom úr hornspyrnu og það var svona eilítið of auðvelt fyrir þá. Vanaken var einn og óvaldaður í teig og fékk bara tíma til að hoppa í boltan og stanga boltan í markið. Eftir það opnuðust flóðgáttirnar.
Hvað þýða úrslitin?
Það er næstum því staðfest núna að KA fer ekki lengra í Evrópu en seinni leikurinn verður á Laugardalsvelli og þar verður spilað upp á stoltið.
Vondur dagur
Það gekk erfiðlega gegn þessu frábæra liði að halda boltanum og byggja upp einhvern sóknarleik. Það var svo sem við því að búast en sérstaklega í fyrri hálfleik þá var það erfitt fyrir leikmenn eins og Hallgrím, Ásgeir og Jóan Edmundsson að gera eitthvað fram á við.
Dómarinn - 9
Bara virkilega vel dæmdur leikur. Svo sem ekki mikið af erfiðum ákvörðunum.



