SKÝRSLAN: Stál í stál í Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Vörn og markvarsla. Leikurinn var harður og mikið var barist úti á velli en hvorugu liði tókst að skapa afgerandi marktækifæri lengst af. Varnirnar gríðarlega þéttar og það sem á annað borð komst innfyrir þær hirtu góðir markverðir beggja liða.
Bestu leikmenn
1. Mikaela Nótt Pétursdóttir
Gríðarlega örugg lengst af í sínum aðgerðum varnarlega mestan part leiks og skilaði þess utan boltanum vel frá sér. Framtíðarleikmaður sem vert er að fylgjast með.
2. Herdís Halla Guðbjartsdóttir
Fædd 2007 og fær á sig alvöru mark eftir tvær mínútur. Skítsama um það og heldur bara áfram. Grípur vel inn í þegar á þarf að halda og á svo sturlaða vörslu gegn Ameeru í seinni hálfleik sem er sennilega ástæða þess að liðin skildu jöfn.
Atvikið
Varsla Herdísar gegn Ameeru. Frábært "reflex save" af stuttu færi sem réði líklega úrslitum í dag. Guðni peppaði hana vel upp í viðtali eftir leik og ég get alveg tekið undir það.
Hvað þýða úrslitin?
Stigið breytir stöðu beggja liiða ekkert, FH í fjórða sæti með 22 stig en Keflavík í því níunda með fjórtán.
Vondur dagur
Ég ætla að henda þeim mæta manni Sigurði Hilmari Guðjónssyni undir rútuna með það að gera. Í þjálfarateymi Keflavíkur og fær að líta rautt spjald fyrir að láta einhver orð falla. Hann virkaði samt furðulostinn er rauða spjaldið fór á loft.
Dómarinn - 6
Sólin sá til þess að ég get ekkert sagt til um hvort að Keflavík átti mögulega að fá víti eða ekki. Lúxusvandamál það. Heilt yfir þó þokkalegt þó rembingur við að halda stjórn á leiknum hafi stundum verið fullmikill.



